Spurt og svarað um tölvukerfið

Tölvustofur

Hvenær eru tölvustofur opnar?
Tölvustofur eru opnar til kl. 19:00 mánudaga - fimmtudaga og til kl. 16:00 á föstudögum. Tölvustofur eru einnig opnar þegar eyður eru í töflum og eru ekki alltaf nýttar þótt tími sé skráður á þær t.d. í stærðfræði. Verkefnastofur eru oft lausar.

Hvernig á að ganga um tölvustofur?
Stranglega er  bannað að fara með mat, sælgæti eða drykk inn í tölvustofur og skiptir engu hvernig drykkurinn er eða hvort flöskur eða dósir séu lokaðar. Þeir sem kjósa að fara ekki eftir þessari reglu missa aðgang sinn að tölvukerfinu og geta þá ekki nýtt sér tölvukerfið í námi.

Innskráning (login)

Hvernig er notendanafnið mitt myndað?
Þrír fyrstu stafir í nafni, einn stafur úr miðnafni (ef nöfn eru fleiri en eitt) og þrír fyrstu úr eftirnafni. Ef notendanafnið er þegar til í kerfinu þá bætist einn stafur við nafn eða miðnafn og aftur ef með þarf.

Hvernig breyti ég lykilorðinu mínu?
Þú tengist netinu, heldur niðri CTRL og ALT og ýtir á DEL. Þá birtist valmynd með valmöguleikanum Change Password. Þar skrifar þú gamla lykilorðið og síðan tvisvar nýja lykilorðið. Lykilorðið þarf að vera a.m.k. 8 enskir bókstafir og/eða tölustafir eða sértákn. A.m.k. einn hástafur þarf að vera í lykilorðinu. Ágætt er að breyta lykilorðinu reglulega og nauðsynlegt er að breyta á 180 daga fresti.

Þegar ég reyni að tengjast netinu þá birtist "Your account has been locked out. Contact your system administrator ..." og ég get ekki tengst. Hvað er að?
Ef þú eða einhver annar reynir oftar en þrisvar sinnum að tengjast netina með röngu lykilorði þá lokar kerfið sjálfkrafa á fleiri tilraunir en opnast aftur að 5 mínútum liðnum. Þetta er til að gera þeim erfiðara fyrir sem eru að reyna að brjótast inn á heimasvæði annarra.

Heimasvæði

Hvaða reglur gilda um heimasvæðið mitt?
Þú berð ábyrgð á því að ekki sé annað á heimasvæðinu en efni sem tengist náminu. Þú berð einnig ábyrgð á því að aðrir misnoti ekki þitt svæði með því að gæta vel að lykilorðinu þínu.

Hvaða gögn mega vera inn á heimasvæðinu mínu?
Þar á eingöngu að geyma efni sem tengist náminu. Þar eiga ekki að vera myndir, lög, forrit né annað sem ekki tengist náminu.

Hvað hef ég mikið pláss á heimasvæðinu mínu?
120 MB - 1000Gb á Office 365 / Onedrive

Ég held að einhver hafi komist inn á heimasvæðið mitt. Hvað á ég að gera?
Þú breytir lykilorðinu og lætur kerfisstjórann vita ( gunnar@verslo.is ).

Hverjir hafa aðgang að heimasvæðinu mínu?
Enginn annar en þú og kerfisstjóri hefur aðgang að þínu heimasvæði (N: drifi). Kennarar hafa hins vegar auk þín aðgang að verkefnaskilasvæði þínu (K: drifi).

Vefsíðusvæði

Hvað er vefsíðusvæði?
Svæði þar sem þú getur vistað gögn sem eru þá aðgengileg um Internetið. Þú getur vistað þar með því að vísa í W: drifið og aðrir geta skoðað það sem þar er með því að vísa í www.verslo.is/home/notendanafn. Nemendur verða að hafa í huga að efni sem er geymt á þessu svæði er aðgengilegt öllum sem á annað borð komast á Internetið. Því verður að gæta þess vel að ekkert sé þar sem skaðað gæti ímynd skólans.

Internetið

Hvaða reglur gilda um Internetsamskipti?
Skólinn er tengdur við Framhaldsskólanetið (fsnet) með 10 Gbita tengingu. Internetaðgangurinn er til að auðvelda nemendum nám en ekki til afþreyingar eða skemmtunar. Því er lokað á ýmsar síður sem ekki eru taldar tengjast námi og ekki er leyfilegt að sækja tónlist, myndir, forrit eða annað það sem ekki tengist námi. Jafnan er ekki leyfilegt að vera á Internetinu í kennslustund nema kennari leyfi það sérstaklega.

Póstur

Hvert er netfangið mitt?
Notendanafnið@verslo.is

Hvað er pósthólfið mitt stórt?
50 Gb.

Hvað get ég tekið við stórum bréfum?
15 MB

Hvernig fer ég að taka til í pósthólfinu mínu?
Bréfin sjálf taka ekki mikið pláss heldur eru það viðhengin t.d. skjöl og myndir sem taka plássið. Þú getur smellt með hægri músarhnappa á viðkomandi möppu, valið Eiginleikar (Properties) og Stærð möppu (Folder size) til að sjá hve mikið pláss hver mappa tekur. Síðan þarftu að eyða úr möppunni því sem þú getur verið án. Þú þarft jafnframt að eyða úr Sendur póstur (Sent Items) möppunni þ.e. bréf sem þú hefur sent. Að lokum þarftu að eyða úr Eydd atriði (Deleted Items) möppunni.

Hvaða reglur gilda um póstsendingar?
Ekki má senda fjöldapóst eða póst sem almennt má ætla að viðtakandinn hafi ekki áhuga á að fá.

Hvernig set ég póstinn upp í símanum?
Best er að leita á netinu að "exchange active sync" ásamt stýrikerfinu sem þið notið t.d. ios, android eða windows. Þá fáið þið upp leiðbeiningar t.d. á YouTube. Ef þið eruð með Gmail netfang þá getið þið beint Verzló póstinum í Gmail pósthólfið. Leitið þá að "exchange active sync gmail".

Hvernig nota ég Office 365?

Innskráning:
Þú skráir þig inn með því að fara á verslo.is og velja „Office365“. Eins er hægt að fara beint á portal.office.com. Netfangið þitt er aðgangsorðið og lykilorðið er það sama og í skólanum.

Office:
Smelltu á „OneDrive“. Þú getur síðan valið „New“ og valið forritið sem á að vinna í. Ekki þarf að vista skjalið sérstaklega þar sem það vistast sjálfkrafa. Ef þú vilt deila skjalinu með öðrum þá getur þú smellt á „Share“.  Þegar þú hættir í forritinu þá birtist nafn skjalsins í listanum. Hægt er að hala skjöl á tölvunni upp (Upload) á Office 365 og búa til möppu á tölvunni sem uppfærist í samræmi við breytingar sem gerðar eru á skrám á Office 365.

Office pakkinn sóttur:
Upphafssíðan er breytileg eftir því hvernig tæki þú ert að nota og hvaða stýrikerfi er á tækinu. Ef þú ert með Windows fartölvu þá getur þú sótt allan Office pakkann. Ef þú ert með IOS (Mac) fartölvu þá er úrvalið aðeins minna. Í báðum tilvikum þarf að velja „Install“ neðst á síðunni. Ef uppsetningarsíðan birtist ekki þá þarf að smella á tannhjólið efst til hægri, síðan á „Office 365 settings“ og að lokum á „software“.Pakkinn er stór og niðurhalið getur því tekið langan tíma. Á Mac þarf að smella á MicrosoftOffice2011.dmg í Downloads möppunni og smella síðan á Office Installer.pkg. Þegar eitthvert forritið er ræst t.d. Word þá þarf að virkja Office pakkann en það er gert með því að skrá sig inn, fyrst þarf að gefa upp netfangið og síðan lykilorðið. Tölvan þarf að vera tengd internetinu til að virkjunin takist.
Sjá frekari leiðbeiningar hér:  http://office.microsoft.com/en-us/office365-suite-help/install-office-on-your-pc-or-mac-with-office-365-for-business-HA102822111.aspx

Þráðlaust net

Hvað þarf ég að gera?
Nemendur geta nú tengst þráðlausa netinu með einföldum hætti og á það jafnt við um fartölvur, spjaldtölvur og snjallsíma.
Í listanum yfir þráðlausu netin sem tækið þitt finnur velur þú Verzlunarskoli Islands. Þá ertu beðinn um notendanafn og lykilorð sem eru þau sömu og þú notar í skólanum. 
Einnig er hægt að velja VI-gestir og nota Facebook innskráningu. Sú tenging er þó háð takmörkunum.

Athugaðu að þú þarft að vera með vírusvörn á tækinu og uppfæra hana reglulega. Stýrikerfið þarf einnig að uppfæra reglulega. Athugið að allur kostnaður við rekstur s.s. vegna hugbúnaðar, uppsetningar og viðhalds á fartölvu fellur alfarið á eigendur þeirra en ekki á skólann.

Útprentun

Hvar get ég prentað út?
Þegar þú tengist netinu í tölvustofum finnur tölvan í hvaða stofu þú ert og tengir þig við prentarann í þeirri stofu. Þú getur einnig valið "Start" - "Printers and faxes" - "Add a printer" - "Next" - Velja: "A network printer ..." - "Next" - "Find a printer in the directory" - "Next" - "Find now" - Tvísmella á prentara sem á að velja - "Next" - "Finish"

Hvernig get ég prentað út á þráðlausa netinu? 
Á www.verslo.is velur þú ÞJÓNUSTA  og því næst TÖLVUÞJÓNUSTA og í valmynd til hægri velur þú PRENTUN og fylgir hlekknum í textanum. Þegar þú hefur skráð þig inn velur þú WEB PRINT og smellir á SUBMIT A JOB. Í næsta skrefi velur þú prentara, en hægt er að velja á milli 7 prentara. Næst þarftu að tilgreina fjölda eintaka sem á að prenta. Veldu UPLOAD FROM COMPUTER til að sækja skjalið sem á að prenta. Einnig er hægt að draga skjöl inn á svæðið "Drag files here".  Athugið að hægt er að prenta út pdf skrár og helstu gerðir Office skráa t.d. Word, Excel og Powerpoint. Veldu UPLOAD AND COMPLETE til að staðfesta prentun. Í skjámyndinni sem birtist sést hvort prentun hefur heppnast.

Hver er prentkvótinn minn?
150 blaðsíður á önn. Þú getur séð hve mikið eftir er af kvótanum með því að fara í upplýsingakerfið og velja Stilling - Prentkvóti. Ef prentkvótinn klárast getur þú keypt viðbótarkvóta á skrifstofunni á 20 kr. fyrir hverja blaðsíðu.

Orðabækur

Hægt er að nálgast ýmsar orðabækur á  snara.is innan skólans.

Skönnun

Hvar get ég skannað inn myndir og skjöl?
Á bókasafninu.

Hugbúnaður

Hvaða hugbúnaður er í tölvunum í tölvustofum:
Á öllum tölvum er Windows 10 professional stýrikerfið og Office Professional 2016  hugbúnaðarpakkinn.  Einnig eru Acrobat reader, Media Player o.fl. forrit á öllum tölvum. Víðast er DVD spilari og ýmsir forritapakkar sem eru notaðir við kennslu á tölvunum.