ALÞJ3AS05

Alþjóðamál og samfélag

  • Einingar5

Í áfanganum er fjallað um alþjóðakerfið, alþjóðleg viðskipti og ólíkar viðskiptavenjur. Sjónarhorninu er einkum beint að ríkjum utan Evrópu, einkum þá Kína, Indlandi og ríkjum Ameríku. Kennsluaðferðir eru í meginatriðum þrenns konar. Í fyrsta lagi eru fyrirlestrar kennara þar sem…

  • Í áfanganum er fjallað um alþjóðakerfið, alþjóðleg viðskipti og ólíkar viðskiptavenjur.
  • Sjónarhorninu er einkum beint að ríkjum utan Evrópu, einkum þá Kína, Indlandi og ríkjum Ameríku.
  • Kennsluaðferðir eru í meginatriðum þrenns konar. Í fyrsta lagi eru fyrirlestrar kennara þar sem námsefnið er reifað og hugtök útskýrð.
  • Þá eru umræður og loks verkefnavinna nemenda; úr námsefninu sjálfu eða öðru sem því tengist.
  • Nemendur kynna sér sjálfir ýmislegt efni sem tiltækt er á netinu og vinna verkefni, þar af vinna nemendur lokaverkefni í tengslum við námsefnð þar sem áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, heimildarýni og gagnrýna hugsun.
  • Gert er ráð fyrir að nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu.

Námsmat byggir á lokaprófi og verkefnum, smærri og stærri sem nemendur vinna yfir önnina.

ALÞJ2IA05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hugtökum, kenningum og viðfangsefnum sem tengjast alþjóðlegum viðskiptum og viðskiptamenningu.

  • Arfi nýlendutímans og hvernig nýlendustefnan hefur haft áhrif á sögu, menningu og samfélag þjóða utan Evrópu.

  • Mismunandi sjónarhornum á alþjóðleg gildi og siðferði.

  • Þýðingu stjórnarfars og mismunandi gerðum þess.

  • Þýðingu greinar fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Setja viðfangsefni fram á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt.

  • Vinna á skilvirkan hátt, sýna frumkvæði og samvinnu við nám og störf.

  • Verja rökstudda afstöðu sína í ræðu og riti.

  • Taka þátt í umræðu og greina alþjóðleg samfélagsleg málefni á gagnrýninn hátt.

  • Beita kenningum á viðfangsefni greinar og við lausn hagnýtra verkefna.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Rökræða skoðanir annarra á yfirvegaðan og fordómalausan hátt.

  • Útskýra viðhorf fólks á ýmsum stöðum og tímum.

  • Efla siðferðilega dómgreind sína og vera meðvitaður um ólíka siði eftir menningarsamfélögum.

  • Greina upplýsingar og efni fjölmiðla um alþjóðleg málefni á gagnrýninn hátt.

  • Skýra samspil mannréttinda og samfélagslegra skyldna og hvernig arfur sögunnar (nýlendutímans) hefur haft áhrif á þróun mála í ríkjum utan Evrópu.

  • Vinna að gerð lokaverkefnis þar sem þræðir áfangans eru teknir saman og nýttir til að vinna úr upplýsingum.

  • Vera fær um að miðla upplýsingum á fjölbreyttan hátt þar sem tekið er mið af ólíkum aðstæðum, menningu og samfélagsgerð.

  • Hafa tileinkað sér tungutak og hugsun sem einkennist af skilningi á ólíkum menningarlegum gildum og siðferði.