Skólahjúkrunarfræðingur

Hjúkrunarfræðingur skólans er Íris Helgudóttir. Hún er starfsmaður Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Hlutverk

Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál, t.d. varðandi:

  • Andlega vanlíðan.
  • Kynheilbrigði.
  • Ráðleggingar getnaðarvarna.
  • Meiðsli og sjúkdóma.
  • Áfengis- og eiturlyfjaneyslu.
  • Nikótínnotkun.
  • Sjálfsmynd og líkamsímynd.
  • Svefn.
  • Mataræði.
  • Hreyfingu.
  • Leiðsögn um heilbrigðiskerfið.
Viðvera og staðsetning

Hjúkrunarfræðingur er staðsettur í herberginu Tómas Tómasson á 3. hæð, við hlið skrifstofunnar.

Viðtalstímar eru á:
þriðjudögum kl. 12.30 – 15.30
fimmtudögum kl. 8.30 – 11.30
föstudögum kl. 8.30 – 13.00
Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu.

Nemendur geta komið við eða bókað tíma í gegnum tölvupóst verslo@heilsugaeslan.is