Fornám í stærðfræði (STÆ 193)

Stærðfræði, upprifjun á námsefni grunnskólans. Vefurinn er opinn öllum án endurgjalds og ekkert námsmat fer fram í tengslum við áfangann.

Verzlunarskólinn býður upp á rafrænt námsefni sem getur nýst 10. bekkingum. Efnið tekur á ýmsum þáttum stærðfræði grunnskóla og hentar þeim sem eru að þjálfa sig fyrir samræmt próf.

Námsefnið er í formi myndskeiða (video) þar sem horft er á útskýringar kennarans. Inn á milli eru verkefni sem nemandinn þarf að reikna og fara yfir með því að horfa á útreikninga og hlusta á skýringar kennarans á töflu.  Í námsefninu eru einnig „dæmablöð“ sem hægt er að prenta út og spreyta sig á áður en horft er á tilsvarandi myndskeið.

Smelltu hér til að nálgast vefinn Kennsluvefur í stærðfræði

Öllum er frjálst að nýta sér þetta námsefni.