Lokapróf

Lokapróf í húsnæði Verzlunarskóla Íslands

Lokaprófin fara fram í húsnæði Verzlunarskóla Íslands.

Lokapróf annars staðar en í húsnæði Verzlunarskóla Íslands

Þeir sem ekki geta tekið prófin sín í húsnæði Verzlunarskólans, þurfa að tilkynna það með því að senda tölvupóst á netfangið  fjarnam@verslo.is.

Úti á landi hafa framhaldsskólar og grunnskólar séð um prófin fyrir okkur. Erlendis hafa starfsmenn sendiráða og ræðismannaskrifstofa séð um próf, einnig er hægt að taka próf í skólastofnun eða á örðum viðurkenndum stað í næsta nágrenni við bústað nemanda.

Sjúkra- og árekstraprófsdagur

Sjúkra- og árekstraprófsdagur er síðasti dagur í próftöflunni. Öllum er heimilt að flytja hvaða próf sem þeir vilja á þann dag og er óþarfi að framvísa læknisvottorði til þess. Tilkynna þarf um færlsu á prófi í síðasta lagi daginn sem prófið á að vera.

Tvö próf sama dag

Þeir sem lenda í því að fá tvö próf sama dag geta annað hvort:

  • Tekið tvö próf sama daginn.
  • Frestað öðru prófinu til sjúkra- og árekstraprófsdags. Tilkynna þarf um færslu á prófi í síðasta lagi daginn sem prófið á að vera.