Náttúrufræðibraut

Á brautinni er lögð áhersla á stærðfræði og raungreinar, s.s. líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði. Sérkenni línunnar eru m.a. líffræði, efnafræði og jarðfræði.

  • NámsleiðStúdentspróf
  • Einingar 205 fein.

Á náttúrufræðibraut er lögð áhersla á kjarnagreinar og sérgreinar brautarinnar í stærðfræði og raungreinum, s.s. líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði. Nemendur fá verslunarpróf á 2. þrepi að loknum 112 einingum og lýkur brautinni með stúdentsprófi á 3. hæfniþrepi. Nemendur sem velja náttúrufræðibraut fá breiða almenna menntun og góðan undirbúning undir frekara nám á háskólastigi. Sérstök áhersla er lögð á svið þar sem raungreina- og stærðfræðimenntunar er krafist svo sem í verkfræði, náttúruvísindum og heilbrigðisvísindum.

Inntökuskilyrði á náttúrufræðibraut er grunnskólapróf og að lágmarki hæfnieinkunn B í íslensku, ensku og stærðfræði. Ef fleiri umsóknir berast en skólinn getur tekið við verður tilgreint á heimasíðu hans hvernig inntöku nemenda er háttað.

Nám á brautinni er þrjú ár með 205 einingum til stúdentsprófs. Námið skiptist annars vegar í 95 eininga skólakjarna, sem er sameiginlegur á öllum stúdentsbrautum skólans, og hins vegar í 60 eininga brautarkjarna sem samanstendur af fögum sem einkenna brautina. Síðan skulu nemendur velja sér einn pakka af tveimur sem inniheldur 30 einingar innan raungreina og/eða stærðfræði. Að auki velja nemendur 20 einingar í frjálsu vali. Námið er fyrst og fremst bóklegt og fer fram í skólanum. Fyrir utan almenna menntun er á brautinni lögð áhersla á nám í stærðfræði, raunvísinda- og náttúrufræðigreinum. Nemendur fá einnig verklega þjálfun í vel búnum tilraunastofum skólans.

Lögð er áhersla á fjölbreytilegt námsmat. Lokaeinkunn hvers áfanga samanstendur ýmist af lokaprófi og símati eða eingöngu símati. Dæmi um símat er leiðsagnarmat, jafningjamat, munnleg og skrifleg verkefnaskil. Í upphafi hverrar annar er nemendum kynnt námsáætlun, hæfniviðmið og tilhögun námsmats hvers áfanga. Til að standast áfanga skal nemandi fá að lágmarki einkunnina 5,0.

Einingafjöldi á brautinni er 205 einingar og er námstími til stúdentsprófs þrjú ár. Nemandi tekur því að meðaltali 68 einingar á ári. Í lok hverrar annar er ferill nemandans gerður upp og þarf hann að hafa náð að minnsta kosti 5,0 í öllum áföngum annarinnar áður en hann færist upp á næstu önn. Nánari skýringar á námsframvindu er að finna í skólareglum.

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að

  • Geta nýtt sér nýjustu upplýsingatækni til að leysa fjölbreytt verkefni
  • Sýna frumkvæði, ábyrgð og umburðarlyndi og beita gagnrýnni hugsun
  • Miðla upplýsingum í ræðu og riti jafnt á íslensku sem og erlendum tungumálum
  • Meta og skilja menningarleg verðmæti
  • Gæta jafnréttis á öllum sviðum og temja sér ríka siðferðisvitund
  • Meta upplýsingar um samfélagið, umhverfið og náttúruna
  • Taka þátt í umræðum og rökstyðja mál sitt á málefnalegan hátt
  • Virða skoðanir annarra og geta leyst verkefni í samvinnu við aðra
  • Efla og viðhalda áhuga sínum á náttúruvísindum
  • Ræða af innsýni og þekkingu um hin ýmsu svið náttúruvísinda
  • Beita hugsun og aðferðum náttúruvísinda
  • Færa rök fyrir skoðunum sínum um sem flestar greinar náttúruvísinda
  • Lesa fræðitexta náttúruvísinda bæði á íslensku og erlendum tungumálum
  • Takast á við nám á háskólastigi, hérlendis sem og erlendis

Áfangar á Náttúrufræðibraut líffræðilína

Grein 1.ár 2.ár 3.ár
Íslenska 2RM06 2GF05 3ÞT05 3NB05 3RR02
Stærðfræði 2ÞA05 2HJ05 3VH05
2LT05
3DF05 3HR05 3BD05
Enska 2OM05 2MV05 3SV05 3NV05
Norðurlandamál 2MM05
Spænska (þriðja tungumál) 1SA05 1SB05 1SC05
Þýska (þriðja tungumál) 1ÞA05 1ÞB05 1ÞC05
Franska (þriðja tungumál) 1FA05 1FB05 1FC05
Saga 2MS05 3MH05
Bókfærsla 1BR05
Hagfræði 1ÞF05
Eðlisfræði 2DL05 2LI05
Efnafræði 2AE05 3LT05 3EJ05
Jarðfræði 2AJ05 3LV05
Líffræði 2AL05 2LE05 3LE05
Vélritun 1FI01
Tölvur 2RT05 2FO05
Íþróttir 1ÍA01 1ÍB01 1ÍC01 1ÍD01
Lífsleikni 1NF00 1NF01 1NB00 1NB01
Val XXX05
XXX05
XXX05
XXX05

Aðrar námsbrautir og línur