LÍFS1NB01

Námstækni og borgaravitund

  • Einingar1

Viðfangsefni áfangans er fjölbreytt. Lögð er áhersla á að nemandi geti nýtt sér námsframboð og námsleiðir skólans á sem árangursríkastan hátt. Það felur í sér að nemandi sé fær um að skoða mismunandi námsleiðir, læri árangursríkar aðferðir við nám í…

  • Viðfangsefni áfangans er fjölbreytt.
  • Lögð er áhersla á að nemandi geti nýtt sér námsframboð og námsleiðir skólans á sem árangursríkastan hátt.
  • Það felur í sér að nemandi sé fær um að skoða mismunandi námsleiðir, læri árangursríkar aðferðir við nám í framhaldsskóla, geri sér grein fyrir námskröfum skólans og aðlagist nýju skólastigi og skólaumhverfi.
  • Nemendur fá einnig fræðslu í ýmis konar málefnum sem snúa að því að efla þá í umræðum og vitund um málefni sem taka þarf til greina, bæði í skólasamfélaginu og hinu borgaralega.

Mætingar nemenda segja til um hvort áfanginn sé staðinn eða ekki.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Námsframboði og námsleiðum sem leiða til mismunandi útgönguleiða.

  • Námstækni og mikilvægi markmiðasetninga.

  • Gildum skólans, hæfni, ábyrgð, virðing, vellíðan.

  • Gildi heilbrigðs lífstíls.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nota námsaðferðir sem skila árangri.

  • Setja sér markmið sem námsmaður og einstaklingur.

  • Skoða námsframboð og námsleiðir.

  • Nýta sér upplýsingar um forvarnir og heilsueflingu.

  • Bera virðingu fyrir sjálfum sér.

  • Sýna umburðalyndi, samhygð og virðingu fyrir öðrum.

  • Taka þátt í jafnréttisumræðu.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Bæta eigin vinnubrögð og samstarf við aðra.

  • Taka ábyrgð á eigin námi.

  • Nýta styrkleika sína sem best.

  • Auka færni sína í mannlegum samskiptum.

  • Bera virðingu fyrir ólíkum skoðunum og viðhorfum.