Skólasöngur

  • Skólasöngur Verzlunarskóla Íslands

    Kepp ötul fram, vor unga stétt,
    að efla landsins gagn;
    brátt færðu krafta, fremd og traust,
    og færð til verka magn.
    Oft brautryðjandans þraut var þung
    en þú ert sterk og djörf og ung
    og framkvæmd mörg á Fróni er
    í framtíð ætluð þér.

    Vér elskum þig, vort ættarland,
    þín ögur, fjöll og dal;
    og þínum hag og þinni sæmd
    vor þróttur helgast skal.
    Þú framtíð vora, Ísland átt,
    þín æska setur markið hátt
    með göfug heit að gagna þér
    og Guð með henni er.

    Og skóli vor, um öll vor ár
    þér unna skulum vér
    og muna æskuárin glöð,
    sem áttum vér hjá þér.
    Þitt aukist gengi, eflist þú,
    sem æskulýðsins glæðir trú
    og vilja og þrek hins vaska manns
    og velferð ættarlands.

    Texti eftir Þorstein Gíslason.

    Lag útsett af  J.K. Cortez.

  • Skólasöngur saminn í tilefni 110 ára afmælis Verzlunarskóla Íslands

    Við erum stoltir Verslingar
    horfum björt til framtíðar.
    Saman lifum hér og nú.
    Hvort annað virðum ég og þú.

    Verum skólans málsvarar
    orðspor verjum allstaðar
    saman heitum ég og þú
    að sýna ábyrgð, kjark og trú

    Viðlag:
    Versló x 6
    Hvort annað virðum ég og þú

    Af alúð lærum okkar fag
    metnað sýnum sérhvern dag
    saman döfnum ég og þú
    hæfni öðlumst hér og nú.

    Hér bestu árin upplifum
    vinaböndin traust bindum.
    Í hug og hjarta jákvætt þel
    Hér í Versló líður vel.

    Viðlag:
    Versló x 6
    Hér í Versló líður vel.

    Texti og lag eftir  Jón Ragnar Jónsson og Friðrik Dór Jónsson.