Dewey flokkunarkerfið

Bókum safnsins er raðað eftir Dewey-flokkunarkerfinu (DDC), alþjóðlegu flokkunarkerfi sem notað er á bókasöfnum víða um heim.

Kerfið skiptir efni í 10 aðalflokka sem merktir eru með tölum frá 000–900. Hverjum aðalflokki er síðan skipt í undirflokka eftir viðfangsefni.

Hvernig finn ég bókina?
Dewey-númerið segir þér hvar bókin er staðsett í safninu.
Bækur um sama eða svipað efni standa því yfirleitt saman í hillunum.

Tíu aðalflokkar Dewey

000 – Almennt efni
100 – Heimspeki, sálfræði og siðfræði
200 – Trúarbrögð
300 – Samfélagsfræðigreinar
400 – Tungumál
500 – Raunvísindi
600 – Tækni, vísindi og framleiðsla
700 – Listir, skemmtanir og íþróttir
800 – Bókmenntir
900 – Sagnfræði, landafræði og ævisögur

Undirflokkar

Hverjum aðalflokki er skipt nánar niður. Hér má sjá helstu undirflokka:

010 Bókaskrár
020 Bókasöfn og upplýsingafræði
030 Alfræðirit
040 Ritgerðasöfn
050 Almenn tímarit
060 Vísindafélög og stofnanir
070 Blaðamennska, blöð og útgáfa
080 Safnrit
090 Handrit og fágætar bækur

110 Frumspeki
120 Þekkingarfræði
130 Dulspeki, dulsálfræði
140 Heimspekistefnur
150 Sálfræði
160 Rökfræði
170 Siðfræði
180 Heimspeki fornaldar
190 Vestræn heimspeki

210 Trúarhugmyndir og skynsemi
220 Biblían
230 Kristin guðfræði
240 Kristin siðfræði, trúarlíf
250 Prestverk, safnaðarlíf
260 Kirkjan
270 Kirkjusaga
280 Kirkjudeildir
290 Trúarbrögð, önnur en kristin

310 Tölfræði
320 Stjórnmál
330 Hagfræði, vinnumál
340 Lögfræði
350 Opinber stjórnsýsla
360 Félagsmál, tryggingar
370 Menntun og skólar
380 Samgöngur, viðskipti
390 Þjóðfræði, siðvenjur

410 Íslenska
420 Enska
430 Þýska og Norðurlandamál
440 Franska
450 Ítalska
460 Spænska
470 Latína
480 Gríska
490 Önnur tungumál

510 Stærðfræði
520 Stjörnufræði
530 Eðlisfræði
540 Efnafræði
550 Jarðfræði, veðurfræði
560 Steingervingafræði
570 Líffræði, mannfræði
580 Grasafræði
590 Dýrafræði

610 Heilbrigðisvísindi, læknisfræði
620 Verkfræði
630 Landbúnaður, sjávarútvegur
640 Heimili og húshald
650 Stjórnun og skrifstofuhald
660 Efnaiðnaður
670 Iðnaður, framleiðsla
680 Handiðnaður, framleiðsla
690 Byggingariðnaður

710 Svæðaskipulag
720 Byggingarlist
730 Höggmyndalist, myndmótun
740 Teiknun, listiðnaður
750 Málaralist
760 Grafík, listmyndaprent
770 Ljósmyndun
780 Tónlist
790 Skemmtanir, leiklist, íþróttir

810 Íslenskar bókmenntir
820 Enskar bókmenntir
830 Þýskar og Norðurlanda bókmenntir
840 Franskar bókmenntir
850 Ítalskar bókmenntir
860 Spænskar bókmenntir
870 Latneskar bókmenntir
880 Grískar bókmenntir
890 Aðrar bókmenntir

910 Landafræði
920 Ævisögur, ættfræði, stéttatöl, fánar
930 Saga fornaldar
940 Saga Evrópu
950 Saga Asíu
960 Saga Afríku
970 Saga Norður-Ameríku
980 Saga Suður-Ameríku
990 Saga annarra heimshluta, Eyjaálfa

Finnur þú ekki það sem þú leitar að?
Komdu við á bókasafninu og við aðstoðum þig við að finna rétta efnið og staðsetningu þess.