Vanskil og glötuð gögn

Hér má sjá hvað gerist ef gögnum er ekki skilað á réttum tíma.

Hvað gerist ef ég skila of seint?

Dagur 1
Nemandi fær SMS um að hann sé kominn í vanskil.

Dagur 2
Nemandi fær SMS um að lokað verði fyrir öll útlán ef gagninu er ekki skilað.

Dagur 3
Lokað er fyrir öll útlán. Nemandi fær SMS um að greiðsluseðill verði sendur fjórum vikum síðar ef gagninu er ekki skilað.

4 vikum síðar
Nemandi fær lokatilkynningu með SMS. Ef gagninu er ekki skilað innan tveggja daga er greiðsluseðill sendur.

Glataðir þú gagninu?

Ef þú veist að bók eða annað gagn er glatað þarftu ekki að bíða þar til vanskilatímabilinu lýkur. Hafðu samband við starfsfólk bókasafnsins og hægt er að ganga frá málinu strax.


Hafa samband við bókasafnið  →

Gjöld vegna glataðra gagna

Eftirfarandi viðmiðunargjöld gilda þegar gögn glatast.

Hlutur Gjald
Bók 3.500 kr.
Spil 3.500 kr.
Tölva 20.000 kr.
Hleðslutæki 4.000 kr.
Myndavél 20.000 kr.
Heyrnatól 2.000 kr.
Vasareiknir 2.000 kr.
Teppi 1.000 kr.
Pennaveski með litum 1.000 kr.
Þrífótur 4.000 kr.
Hljóðnemi 5.000 kr.

Athugið:
Ef bók eða spil er nýrra en tveggja ára miðast gjaldið við innkaupsverð.