ENSK3EM05

Breskt samfélag og menning

  • Einingar5

Nemendur fá innsýn í breska menningu með því að skoða sögu, menningu og stjórnskipun í Bretlandi. Nemendur lesa eitt leikrit á ensku, nokkrar smásögur og aðrar greinar sem tengjast breskri menningu. Námið miðar að því að nemendur þjálfist í enskri…

  • Nemendur fá innsýn í breska menningu með því að skoða sögu, menningu og stjórnskipun í Bretlandi.
  • Nemendur lesa eitt leikrit á ensku, nokkrar smásögur og aðrar greinar sem tengjast breskri menningu.
  • Námið miðar að því að nemendur þjálfist í enskri tungu og bæti við orðaforða sinn og málskilning.
  • Nemendur eru þjálfaðir í ritun enskrar tungu þar sem þeir gera eitt langt rannsóknarverkefni, vinna þýðingar yfir á ensku svo og smærri ritunarverkefni.
  • Nemendur eru einnig þjálfaðir í töluðu máli, bæði með styttri umræðum á ensku og formlegum fyrirlestri á ensku um efni sem tengist breskri menningu.
  • Nemendur munu einnig nota Internetið sér til fróðleiks og efnisöflunar.
  • Ætlast er til þess að nemendur hafi öðlast hæfni C1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Nemendur fá eina einkunn í lok áfangans sem samanstendur af ástundun og virkni, skyndiprófum/verkefnum og skriflegu lokaprófi.

ENSK3SV05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Sögu, menningu og stjórnskipun í Bretlandi.

  • Völdum breskum bókmenntum.

  • Víðtækum sem og sértækum orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér lesefni þessa áfanga svo og í áframhaldandi námi.

  • Hefðum sem eiga við um talað og ritað mál.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa og skilja fagtexta jafnt sem almenna texta um hinar ýmsu hliðar bresks mannlífs.

  • Skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram eða töluð með mismunandi framburði.

  • Nýta tungumálið í almennum samræðum.

  • Tjá sig um margvísleg málefni þar sem bæði er lögð áhersla á færni í tungumálinu svo og öryggi í því að koma fram.

  • Rita fræðilega og persónulega texta samkvæmt hæfniviðmiðum þrepsins.

  • Leita upplýsinga og vinna heimildavinnu.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið fræðilegt efni sem tengist breskri menningu og samfélagi.

  • Greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta, s.s. í bókmenntaverkum og öðrum textum, skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram eða töluð með mismunandi framburði.

  • Geta lagt gagnrýnið mat á texta.

  • Hagnýta sér fræðitexta, myndefni og umræður um efni sem tengist Bretlandi.

  • Átta sig á mismunandi málsniði og stíl eftir því hvort notað er talað mál eða ritað.

  • Taka fullan þátt í umræðum og rökræðum sem tengjast viðfangsefnum áfangans.

  • Flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð með eða án glæra, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt og bregðast við fyrirspurnum.

  • Skrifa vel uppbyggðar efnisgreinar svo og ritgerðir samkvæmt þeim rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag.

  • Vinna rannsóknarverkefni úr ýmsum upplýsingaveitum þar sem heimilda er getið á réttan hátt.