ENSK3ME05

Menning enskumælandi landa

  • Einingar5

Nemendur fá innsýn í menningu og samfélag í enskumælandi löndum. Nemendur lesa greinar, skáldsögu og smásögur auk þess sem þeir afla sér efnis á netinu. Námið miðar að því að nemendur þjálfist í enskri tungu og bæti við orðaforða sinn…

  • Nemendur fá innsýn í menningu og samfélag í enskumælandi löndum.
  • Nemendur lesa greinar, skáldsögu og smásögur auk þess sem þeir afla sér efnis á netinu.
  • Námið miðar að því að nemendur þjálfist í enskri tungu og bæti við orðaforða sinn og málskilning. Þeir eru þjálfaðir í að tjá sig á ensku, á gagnrýnan hátt, bæði í ritun og tali. Þeir skrifa rannsóknarritgerð, velja rannsóknarefni, afla heimilda, leita upplýsinga, skilgreina og setja fram rök í rituðu máli. Auk þess flytja þeir fyirlestra og vinna ýmis smærri verkefni.
  • Kennsluhættir eru í formi einstaklingsmiðaðs náms, paravinnu og hópvinnu.
  • Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði nemenda og gagnrýna hugsun í áfanganum.

ENSK3SV05. Þetta er annar áfangi á þriðja þrepi.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Samfélagi og menningu enskumælandi landa, hefðum, uppruna og áhrifum í alþjóðasamfélagi.

  • Sérhæfðum orðaforða fagtexta.

  • Upplýsingarleit og eðli rannsóknarritgerðar.

  • Hvernig greina skal texta t.d. bókmenntatexta.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa sér til gagns ýmsar tegundir af textum þannig að hann geti endursagt þá, dregið fram meginatriði textans í töluðu og rituðu máli.

  • Nýta tungumálið í almennum samræðum.

  • Tjá sig um margvísleg málefni þar sem bæði er lögð áhersla á færni í tungumálinu, svo og öryggi í því að koma fram.

  • Rita fræðilega og persónulega texta samkvæmt hæfniviðmiðum þrepsins.

  • Leita upplýsinga og heimildavinnu.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið fræðilegt efni sem tengist menningu og samfélagi.

  • Greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta, s.s. í bókmenntaverkum og öðrum textum.

  • Leggja gagnrýnið mat á texta.

  • Nýta sér fræðitexta, myndefni og umræður um málefni sem tengjast viðfangsefni.

  • Taka fullan þátt í umræðum og rökræðum sem tengjast viðfangsefnum áfangans.

  • Miðla þekkingu, skoðunum og hugmyndum af innsæi og á skipulegan hátt.

  • Rökstyðja mál sitt og bregðast við fyrirspurnum.

  • Beita rithefðum sem við eiga í textasmíð, meðal annars í rannsóknarritgerð, geta sett mál sitt fram á gagnorðan, skilmerkilegan og vel rökstuddan hátt.