FRAN2FD05

Franska D, fjórði áfangi

  • Einingar5

Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér. Haldið er áfram að þjálfa nemendur jöfnum höndum í öllum færniþáttum tungumálsins, hlustun, lestri, tali og ritun í samræmi við evrópska tungumálarammann. Áhersla er lögð á tjáningu…

  • Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér.
  • Haldið er áfram að þjálfa nemendur jöfnum höndum í öllum færniþáttum tungumálsins, hlustun, lestri, tali og ritun í samræmi við evrópska tungumálarammann.
  • Áhersla er lögð á tjáningu í töluðu og rituðu máli og að auka orðaforða og unnið með flóknari formgerð frönskunnar.
  • Nemendur kynnast enn frekar menningu frönskumælandi landa.
  • Áhersla er lögð á að nemendur geti notað kunnáttu sína við fjölbreyttar aðstæður daglegs lífs.
  • Áfanginn er á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Beita skal fjölbreyttu námsmati sem endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópska tungumálarammann. Lokaeinkunn byggir á mati á virkni og verkefnaskilum nemenda og á lokaprófi þar sem færniþættirnir lestur, hlustun, tal og ritun eru metnir jöfnum höndum. Dýpri og stærri verkefni skulu liggja til grundvallar vinnueinkunn.

FRAN1FC05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans.

  • Öllum helstu grundvallarþáttum í uppbyggingu málkerfisins.

  • Ýmsum almennum aðstæðum í daglegu lífi, menningu og siðum í Frakklandi og í öðrum frönskumælandi löndum.

  • Útbreiðslu frönskunnar, ásamt ólíkum venjum, siðum, staðháttum og menningu frönskumælandi landa.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skilja allvel talað mál um kunnugleg efni og greina aðalatriði í fjöl- og myndmiðlum þegar fjallað er um afmörkuð málefni.

  • Lesa margskonar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni.

  • Taka þátt í og tjá sig í samræðum um fyrirfram ákveðið efni sem hann hefur þekkingu og áhuga á.

  • Skrifa styttri samfellda texta um efni sem hann þekkir, draga ályktanir og tjá eigin skoðanir og nota viðeigandi málfar.

  • Nota upplýsingatækni og önnur hjálpargögn.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega um efni sem hann þekkir.

  • Eiga frumkvæði í samræðum og geta tekið þátt í skoðanaskiptum í málefnum sem hann þekkir.

  • Tileinka sér aðalatriðin í frásögnum í fjöl- og myndmiðlum og átta sig á dýpri merkingu texta.

  • Fjalla um atburði, ímyndaða og raunverulega á fjölbreyttari hátt en áður bæði munnlega og skriflega.

  • Lesa sér til upplýsingar og ánægju efni af hæfilegu þyngdarstigi.

  • Meta eigið vinnuframlag og stöðu sem og samnemenda sinna.

  • Finna og nýta sér upplýsingar af netinu á frönsku á málefnum sem hann þekkir til.