MARK2HN05

Hugtök og notkun þeirra

  • Einingar5

Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni markaðsfræðinnar. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á gildi markaðsstarfs fyrir neytendur, fyrirtæki og samfélagið í heild. Leitast er við að nemendur tileinki sér markaðslega hugsun. Fjallað er um söluráðana og samval þeirra…

  • Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni markaðsfræðinnar.
  • Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á gildi markaðsstarfs fyrir neytendur, fyrirtæki og samfélagið í heild.
  • Leitast er við að nemendur tileinki sér markaðslega hugsun.
  • Fjallað er um söluráðana og samval þeirra við markaðssetningu.
  • Kynnt eru fyrir nemendum helstu atriði er varða umhverfi fyrirtækja, markaðshlutun, kauphegðun og mörkun og almenn vinnubrögð við markaðssetningu.
  • Nemendum fá að kynnast vinnubrögðum í markaðssetningu með því að vinna að hagnýtum verkefnum.
  • Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu nemenda.
  • Áhersla er lögð á raunhæf verkefni og hópavinnu og að nemendur sýni sjálfstæði í vinnubrögðum.

Námsmat samanstendur af verkefnum og kaflaprófum á önninni sem og skriflegu lokaprófi.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Tilgangi og hugmyndafræði markaðsfræðinnar og þýðingu markaðsstarfs fyrir fyrirtæki og samfélag.

  • Mismunandi afstöðu fyrirtækja til markaðarins.

  • Hugsanlegum neikvæðum afleiðingum sem markaðssetning getur haft fyrir einstaklinga og samfélag.

  • Söluráðunum; vara, verð, kynning og dreifing.

  • Helstu þáttum í ytra umhverfi fyrirtækja.

  • Helstu hugmyndum um kaupvenjur á neytendamarkaði og fyrirtækjamarkaði.

  • Markhópagreiningu, markaðsmiðun og markaðshlutun.

  • Helstu hugtökum og hugmyndum varðandi vöru, vöruþróun og líftíma vöru.

  • Mörkun og þróun vörumerkja.

  • Helstu atriðum varðandi markaðssetningu þjónustu.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita grunnhugtökum markaðsfræðinnar við verkefnavinnu.

  • Ræða hugmyndir markaðsfræðinnar.

  • Vinna saman í hóp.

  • Koma þekkingu sinni varðandi markaðstengd viðfangsefni á framfæri.

  • Geta leyst raunhæf verkefni (case) í markaðsfræði.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Beita hugtökum markaðsfræðinnar í starfi.

  • Meta siðfræðileg álitamál sem varða markaðssetningu.

  • Heimfæra hugmyndir markaðsfræðinnar á eigið líf.

  • Nýta sér hæfni sína til frekara náms í markaðsfræði.

  • Nýta hæfni sína til starfa við einföld markaðsmál.

  • Gera markhópagreiningu fyrir einstakar vörur.

  • Miðla vitneskju sinni um markaðsmál til annarra.