MENN2EM05

Menningarfræði, evrópsk menning

  • Einingar5

Í áfanganum er fjallað um menningu frá mismunandi sjónarhorni ólíkra félagsgreina. Í þessum áfanga er áherslan einkum á evrópska og íslenska menningu og birtingarmyndir hennar. Áhersla er lögð á virkni nemenda og fjölbreytni í gagnanotkun og framsetningu. Verkefnin felast í…

  • Í áfanganum er fjallað um menningu frá mismunandi sjónarhorni ólíkra félagsgreina.
  • Í þessum áfanga er áherslan einkum á evrópska og íslenska menningu og birtingarmyndir hennar.
  • Áhersla er lögð á virkni nemenda og fjölbreytni í gagnanotkun og framsetningu.
  • Verkefnin felast í skriflegum verkefnum þar sem tekin er sjálfstæð afstaða til fyrirliggjandi námsefnis og hóp- og paraframsöguverkefnum.
  • Gert er ráð fyrir að nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu.

Í áfanganum er lokapróf en vinnueinkunn vegur því sem næst jafn mikið og er að mestu gefin út frá mati á verkefnum, mati á viðhorfum og virkni í námi og frammistöðu á annarprófi.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hugtökum, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum helstu félagsgreina.

  • Mismunandi sjónarhornum ólíkra félagsgreina á menningu.

  • Orsökum mismunandi menningar við ólíkar aðstæður.

  • Þýðingu menningar og mismunandi birtingarmynda hennar.

  • Þýðingu menningarfræði fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun.

  • Hugmyndum og umræðum um gildi mismunandi menningar.

  • Helstu sérkennum íslenskrar menningar í samanburði við evrópska menningu.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Setja viðfangsefni fram á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt.

  • Temja sér skilvirk vinnubrögð, frumkvæði og samvinnu við nám og störf.

  • Verja rökstudda afstöðu sína.

  • Taka þátt í umræðu og greina samfélagsleg málefni á gagnrýninn hátt.

  • Beita kenningum á viðfangsefni greinar og við lausn hagnýtra verkefna.

  • Beita upplýsingatækni við þekkingarleit.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Taka þátt í málefnalegum umræðum.

  • Rökræða skoðanir annarra á yfirvegaðan og fordómalausan hátt.

  • Útskýra menningu og viðhorf fólks á ýmsum stöðum og tímum.

  • Efla siðferðilega dómgreind sína.

  • Greina upplýsingar og efni fjölmiðla um menningu á gagnrýninn hátt.

  • Greina áhrif umhverfis og sögu á menningu.

  • Sýna frumkvæði í verkum sínum og samskiptum.

  • Auka framtíðarmöguleika sína í áframhaldandi námi eða starfi og daglegum viðfangsefnum.