REKH2MT05

Rekstrarhagfræði, markaðsform og teygni

  • Einingar5

Kennslan er byggð á fyrirlestrum, umræðum og dæmatímum. Lögð er áhersla á útreikning dæma og túlkun niðurstöðu þeirra, gerð grafa og greiningu þeirra. Einnig að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð og færni til að setja fram eigin niðurstöður á læsilegan…

  • Kennslan er byggð á fyrirlestrum, umræðum og dæmatímum.
  • Lögð er áhersla á útreikning dæma og túlkun niðurstöðu þeirra, gerð grafa og greiningu þeirra.
  • Einnig að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð og færni til að setja fram eigin niðurstöður á læsilegan hátt.
  • Lögð er áhersla á að nemendur fylgist með eigin námsframvindu og beri ábyrgð á henni.
  • Í áfanganum er farið í grunnatriði rekstrarhagfræðinnar og nemendur læra um hugtök eins og teygni, birgðastýringu, framleiðslu, kostnað, mismunandi markaðsform, verðaðgreiningu o.s.frv.
  • Lögð er áhersla á að nemendur læri um mikilvægi skilvirkni í framleiðslu og rekstri fyrirtækja ásamt því að setja niðurstöður sínar skýrt fram.

Í lok áfangans er skriflegt lokapróf sem gildir á móti ýmis konar vinnu, verkefnum og ástundun nemandans á önninni.

REKH1GR05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hlutverki líkanasmíði í hagfræði.

  • Teygnihugtakinu almennt og helstu tegundum teygni.

  • Framleiðslu og afkastalögmálinu.

  • Kostnaðargreiningu og mismunandi kostnaðarhugtökum.

  • Mismunandi markaðsformum: einokun, fákeppni, einkasölusamkeppni, verðleiðsögn, fullkomin samkeppni.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Fást við teygniútreikninga og túlkun þeirra.

  • Reikna dæmi tengd framleiðsluútreikningum og birgðahaldi.

  • Reikna 0-punkta, lágmarksverð til skamms- og langs tíma fyrir stöðvun/lokun fyritækis.

  • Reikna hagkvæmasta verð og magn miðað við mismunandi markaðsform, markaðsaðstæður og kostnaðarskipan.

  • Reikna og sýna fram á hvernig auka má hagnað fyrirtækis með verðaðgreiningu.

  • Nota diffrun, þegar við á, við lausn hámörkunar- og lágmörkunarvandamála.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Greina á hvaða markaði tiltekið fyrirtæki starfar og geti metið þau markaðsöfl, leikreglur og samkeppni sem skýra verðstefnu og hegðun þess á markaði.

  • Túlka og greina, á gagnrýninn hátt, niðurstöður rekstrarhagfræðilegra útreikninga.

  • Meta hvenær fyrirtæki á að beita verðaðgreiningu og hvað býr að baki verðstefnunni.

  • Nota stærðfræði og upplýsingatækni við lausn hagfræðilegra viðfangsefna.

  • Taka þátt í hópavinnu við úrlausn rekstrarhagfræðilegra vandamála á gagnrýninn og jákvæðan hátt.