SAGA3MR05

Menningarsaga og saga mannréttindabaráttu á 20. og 21. öld

  • Einingar5

Áfanginn fjallar um sögu síðustu áratuga ásamt því sem farið er í valda þætti mannréttindabaráttu og atburða líðandi stundar. Mikil áhersla er lögð á virkni nemenda og fjölbreytni í gagnanotkun og framsetningu. Verkefnin felast í rituðu máli (skýrslugerð) og skriflegum…

  • Áfanginn fjallar um sögu síðustu áratuga ásamt því sem farið er í valda þætti mannréttindabaráttu og atburða líðandi stundar.
  • Mikil áhersla er lögð á virkni nemenda og fjölbreytni í gagnanotkun og framsetningu.
  • Verkefnin felast í rituðu máli (skýrslugerð) og skriflegum verkefnum þar sem tekin er sjálfstæð afstaða til fyrirliggjandi námsefnis, hóp- og paraframsöguverkefnum, stuttmyndum, heimasíðum og útvarpsþáttum.
  • Í mörgum tilvikum velja nemendur sjálfir heppilegasta framsetningarmátann, miðað við efnið sem gera á skil.

Námsmat er samsett úr ýmsum þáttum, bæði verkefnum og prófum. Nánar er kveðið á um námsmatið í námsáætlun áfangans.

SAGA3MS05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Völdum köflum mannréttindabaráttu á 20. öld.

  • Framþróun í okkar heimshluta síðustu áratugi og tengslum hans við aðrar heimsálfur og helstu þáttum í sögu tuttugustu aldar og tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

  • Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til frekara náms í greininni.

  • Nauðsyn faglegrar og fræðilegrar umræðu í námi og starfi.

  • Þeim hugmyndum sem mótað hafa viðhorf fólks til jafnréttis, lýðræðis og mannréttinda.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Greina fjölbreytt orsakasamhengi.

  • Taka virkan þátt í samfélagslegri umræðu.

  • Skipuleggja tíma sinn á raunhæfan hátt.

  • Vinna sjálfstætt við skapandi rannsóknarvinnu.

  • Skrifa fræðilegan texta.

  • Beita upplýsingatækni við þekkingarleit.

  • Beita öguðum, faglegum og siðferðilega réttmætum vinnubrögðum.

  • Beita gagnrýnni hugsun.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Meta heimildir og rannsóknagögn á gagnrýninn hátt og setja fram rökstuddar tilgátur um viðfangsefni.

  • Setja fram nákvæmar röksemdir fyrir skoðunum sínum.

  • Beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám.

  • Nálgast verkefni á faglegan og sjálfstæðan hátt.

  • Beita því verklagi sem hæfir rannsókn eða lausn verkefna og álitaefna hverju sinni.

  • Setja fram rökstuddar hugmyndir um viðfangsefni greinar.

  • Móta og skilgreina fagleg viðhorf sín til viðfangsefna viðkomandi greinar.

  • Hefja háskólanám í félags-, mann- og hugvísindum.