STÆR2MM05

Margliður og hnitakerfið

  • Einingar5

Í áfanganum er mest unnið með hnitakerfið. Byrjað er með mengjum og mengjaaðgerðum. Aðgerðir á margliðum s.s. deiling margliða og síðan er unnið sérstaklega með beinu línuna og fleygboga og endað á kynningu á diffrun. Gerðar eru kröfur um að…

  • Í áfanganum er mest unnið með hnitakerfið. Byrjað er með mengjum og mengjaaðgerðum. Aðgerðir á margliðum s.s. deiling margliða og síðan er unnið sérstaklega með beinu línuna og fleygboga og endað á kynningu á diffrun.
  • Gerðar eru kröfur um að nemendur vinni verkefni heima og standi skil á þeim annað hvort í kennslustund eða með því að skila verkefnum skriflega. Kennari fer síðan yfir heimaverkefni og nemendur fá endurgjöf.
  • Í kennslustundum eru notaðar reiknivélar. Einnig eru verkefni leyst með stærðfræðiforritum t.d. forritinu GeoGebra.

Próf er í áfanganum í annarlok og frammistaða nemenda á önninni þ.m.t. í skyndiprófum og örprófum, heimadæmum og ástundun kemur einnig inn í lokaeinkunn.

STÆR2PÞ05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mengjum og grunnaðgerðum mengja.

  • Talnalínunni, algildi og biltáknum.

  • Liðun og þáttun margliða.

  • Rétthyrndu hnitakerfi í sléttum fleti.

  • Jöfnu línu, annars stigs jöfnum, algildisjöfnum, línulegum og annars stigs ójöfnum.

  • Margliðum: skilgreining, deiling, núllstöðvar og formerki.

  • Jöfnu fleygboga.

  • Merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skilja að stærðfæðin hefur eigin framsetningarmáta.

  • Tjá sig um aðferðir sínar bæði í rituðu og mæltu máli og vera læs á texta sem inniheldur stærðfræðitákn og hugtök.

  • Vinna með grunnaðgerðir mengja.

  • Kunna að fara með talnamengin N,Z,Q,R.

  • Finna lausnir annars stigs jafna.

  • Vinna í rétthyrndu hnitakerfi í sléttum fleti.

  • Diffra einföld föll.

  • Nota vísindaleg reikniforrit.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Setja sig inn í og túlka útskýringar og röksemdir annarra af virðingu og umburðarlyndi án fordóma.

  • Skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega í mæltu máli og myndrænt.

  • Vinna á skilmerkilegan hátt með hugtök námsefnisins.

  • Beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna.

  • Beita skipulegum aðferðum við að leysa verkefni og setja upp jöfnur.

  • Klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina.

  • Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og í texta og sanna ákveðnar reglur.

  • Beita einföldum samsettum röksemdum.