STÆR2PÞ05

Prósentur og þríhyrningar

  • Einingar5

Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslu og lausnum verkefna og þrauta. Lögð er áhersla á talnareikning, lausn jafna, prósentureikning auk rúmfræði þar sem samsíða línur, þríhyrninga þar sem nemendur kynnast hornaföllunum í rétthyrndum þríhyrningum. Um…

  • Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslu og lausnum verkefna og þrauta.
  • Lögð er áhersla á talnareikning, lausn jafna, prósentureikning auk rúmfræði þar sem samsíða línur, þríhyrninga þar sem nemendur kynnast hornaföllunum í rétthyrndum þríhyrningum.
  • Um bekkjarkennslu er að ræða og fer kennslan að mestu leyti fram í formi fyrirlestra.
  • Nemendur vinna ýmist sjálfstætt, í pörum eða í hópum.

Námsmat er samsett úr vinnueinkunn sem endurspeglar ástundun og vinnu í tímum svo og skriflegu lokaprófi í lok annar.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Talnareikningi, forgangsröð aðgerða.

  • Veldareglum og veldareikningi.

  • Hlutfallareikningi, prósentureikningi.

  • Vöxtum og vaxtavöxtum.

  • Þríhyrningum og hornaföllum.

  • Jöfnum af fyrsta stigi, tveimur jöfnum með tveimur óþekktum stærðum, óuppsettum jöfnum.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita þeim reglum sem tilheyra námsefninu og leysa verkefni og dæmi sem lögð eru fyrir.

  • Beita reiknireglum í tengslum við heil og brotin veldi.

  • Setja upp og leysa jöfnur sem innihalda tvær óþekktar stærðir.

  • Reikna stærð allra horna og hliða í þríhyrningum með notkun hornafalla og öðrum reiknireglum.

  • Setja upp og leysa jöfnur sem innihalda tvær óþekktar stærðir.

  • Reikna stærð allra horna og hliða í þríhyrningum með notkun hornafalla og öðrum reiknireglum.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Setja sig inn í og túlka útskýringar og röksemdir annarra.

  • Skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum um þær við aðra og útskýrt hugmyndir sínar.

  • Beita skipulegum aðferðum við lausnir þrauta úr kunnuglegu samhengi og geta útskýrt aðferðir sínar.

  • Beita gagnrýninni og skapandi hugsun og sýna áræðni, frumkvæði, innsæi og frumleika við lausnir.

  • Klæða hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, geta leyst þau og túlkað lausnir.

  • Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta og beitt einföldum röksemdum.