ÞÝSK2ÞD05

Þýska D, fjórði áfangi

  • Einingar5

Áfanginn er framhaldsáfangi og flokkast undir A2 skv. evrópska tungumálarammanum. Lögð er áhersla á 4 færniþætti tungumálakennslu: hlustun, lestur, tal og ritun. Nemandi les og skilur lengri samhangandi texta og flóknari samtöl. Nemandi getur tekið þátt í almennum samræðum og…

  • Áfanginn er framhaldsáfangi og flokkast undir A2 skv. evrópska tungumálarammanum.
  • Lögð er áhersla á 4 færniþætti tungumálakennslu: hlustun, lestur, tal og ritun.
  • Nemandi les og skilur lengri samhangandi texta og flóknari samtöl.
  • Nemandi getur tekið þátt í almennum samræðum og skrifað lengri texta.
  • Nemendur nota grunnbækur, lesbók og vinnubók. Einnig lesa þeir smásögur, syngja og leika.
  • Unnið er með kvikmyndir og efni af netinu, þar sem nemendur fá kynningu á landi og þjóð.
  • Verkefni eru ýmist einstaklings- eða hópverkefni.
  • Lögð er áhersla á notkun upplýsingatækni.

Í lok áfangans er skriflegt próf sem gildir á móti vinnueinkunn. Í vinnueinkunn koma fyrir ýmis verkefni eins og skrifleg-, munnleg, video– og hlustunarverkefni sem unnin hafa verið á önninni. Verkefnin eru ýmist unnin sem einstaklings- eða hópverkefni með hjálp upplýsingatækninnar. Skriflega lokaprófið samanstendur af ritun, lesskilningi, málfræði- og orðaforðaæfingum.

ÞÝSK1ÞC05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans.

  • Öllum helstu grundvallarþáttum í uppbyggingu þýska málkerfisins.

  • Ýmsum almennum aðstæðum í daglegu lífi, menningu og siðum í Þýskalandi og í öðrum þýskumælandi löndum.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skilja talað mál um kunnugleg efni og greina aðalatriði í fjöl- og myndmiðlum þegar fjallað er um afmörkuð málefni.

  • Lesa margskonar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni.

  • Taka þátt í og tjá sig í samræðum um fyrirfram ákveðið efni sem hann hefur þekkingu og áhuga á.

  • Skrifa styttri samfelldan texta um efni sem hann þekkir, draga ályktanir og tjá eigin skoðanir og nota viðeigandi málfar.

  • Nota upplýsingatækni og hjálpargögn.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega um efni sem hann þekkir.

  • Eiga frumkvæði í samræðum og geta tekið þátt í skoðanaskiptum í málefnum sem hann þekkir.

  • Tileinka sér aðalatriðin í frásögnum í fjöl- og myndmiðlum og átta sig á dýpri merkingu texta.

  • Fjalla um atburði, ímyndaða og raunverulega á fjölbreyttan hátt.

  • Lesa sér til ánægju efni af hæfilegu þyngdarstigi.

  • Geta metið eigið vinnuframlag og stöðu.