Skuggakosningar 13. október
Skuggakosningar (e. Shadow elections) eru kosningar þar sem nemendur framhaldsskólanna fá að segja sína skoðun. Skuggakosningarnar haustið 2016 munu fanga vilja framhaldsskólanemenda um allt land. Kosningarnar fara fram 13. október, en niðurstöður verða gerðar opinberar eftir að kjörstöðum lokar á kjördag alþingiskosninga, 29. október. (tekið af heimasíðu www.egkys.is)

Nemendur í frönsku skiptast á heimsóknum við frönsk ungmenni frá Rumilly í Frakklandi
Dagana 1. – 8. október dvaldi 25 manna nemendahópur ásamt tveimur kennurum í Rumilly í frönsku ölpunum. Dvöldu nemendur hjá frönskum fjölskyldum og kynntust við það frönskum háttum og siðum. Farið var í skoðunarferðir til Lyon, Annecy og Chamonix en þar var tekinn kláfur upp í Aiguille du Midi sem er í 3.842m hæð yfir sjávarmáli. Þar blasir Mont Blanc við í allri sinni dýrð. Höfðu margir nemendur á orði að þetta hafi verið hápunktur ferðarinnar.
Vel var tekið á móti hópnum en verið var að endurgjalda heimsókn franskra ungmenna til Íslands vikuna á undan. Í þeirri heimsókn fóru Frakkarnir m.a. inn í Landmannalaugar, á Reykjanesið og að Gullfoss og Geysi.
Segja má að mikið álag hafi verið á nemendur báðar þessar vikur en að það hafi verið þess virði þar sem svona heimsóknir eru mjög lærdómsríkar og gefandi fyrir þátttakendur.

Pallborðsumræður fyrir komandi Alþingiskosningar
Málfundafélag Verzlunarskólans kynnir,
Pallborðsumræður milli flokka í framboði fyrir komandi Alþingiskosningar! Þetta er frábær vettvangur fyrir alla sem eru ekki vissir hvar þeir standa á pólitíska skalanum og til að sjá hvaða fólk stendur undir nafni flokkana. Markmið fundarins er að skapa umræðu og leyfa öllum sem vilja að spurja flokkana spjörunum úr.
Fundurinn byrjar á slaginu 11:00, þriðjudaginn 11. október og stendur til 12:25.
Foreldrakvöld í Verzló - Bláa sal
Þriðjudaginn 27. sept. kl. 19.30 býður Foreldraráðið öllum foreldrum í Versló á foreldrakvöld með góðum veitingum, skemmtilegri samveru og fjölbreyttri dagskrá í Bláa sal sem er eftirfarandi:
AÐALFUNDUR Foreldrafélagsins
Hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum félagsins
NFVÍ – Hvað er að gerast í vetur?
Kynning stjórnar NFVÍ á því sem framundan er í félagslífinu í vetur
FRÍMÍNÚTUR (hlé)
Tækifæri til tengslamyndunar yfir kaffibolla, gosi og góðum veitingum
FYRIRLESTURINN „Verum ástfangin af lífinu“ – Þorgrímur Þráinsson
Stolt bjóðum við foreldrum upp á jákvæðan og uppbyggilegan fyrirlestur með Þorgrími Þráinssyni sem er flestum löngu landskunnur. Þorgrímur er afar eftirsóttur fyrirlesari, hefur haldið fyrirlestra fyrir ungmenni í fjölda ára og fyrir atvinnulífið undanfarin tvö ár. Sjálfur er hann þriggja barna faðir og hefur glímt við margvísleg ,,uppeldisleg“ vandamál. Þorgrímur hefur jafnframt unnið með landsliðinu í knattspyrnu í 10 ár og segir frá því hvað sterk liðsheild og jákvætt hugarfar skipta miklu máli eins og árangur Íslands á EM sýndi svo sannarlega. Hann fer einnig inn á það hversu miklu máli það skiptir að vera í góðu jafnvægi dags daglega, setja sér markmið og gera góðverk og ræðir hvað við foreldrarnir getum gert til að hvetja ,,börnin“ okkar til dáða? Er hreyfing og hollt mataræði lykillinn að vellíðan eða skipta ,,like“ meira máli?

Vinningshafar í edrúpottinum
Búið er að draga úr edrúpottinum og eru vinningshafar eftirfarandi:
1. ár
María Kristín Jóhannsdóttir 1-B, 10.000 kr. gjafakort frá foreldraráði VÍ
Kári Jón Hannesson 1-G, 10.000 kr. gjafakort frá foreldraráði VÍ
Bryndís Björk Bergsdóttir 1-T, 10.000 kr. gjafakort frá foreldraráði VÍ
Tinna Kristín Kristinsdóttir 1-R, 10.000 kr. gjafakort frá foreldraráði VÍ
Styr Orrason 1- E, boðsmiðar á Listóleikritið fyrir tvo
Orri Heiðarsson 1-V, tveir miðar á miðannaball NFVÍ
Gabríela Ýr Þorvaldsdóttir 1-H, 10 juice kort á Joe & The Juice
Viktor Örn Gunnarsson 1-F, 10 máltíðakort í Matbúð
2. ár
Jóel Fjalarsson 2-U 10.000 kr. gjafakort frá foreldraráði VÍ
Lárey Huld Róbertsdóttir 2-B, 10.000 kr. gjafakort frá foreldraráði VÍ
Jón Smári Ólafsson 2-R, 10.000 kr. gjafakort frá foreldraráði VÍ
Sólveig Björnsdóttir 2-X, 10.000 kr. gjafakort frá foreldraráði VÍ
Andrea Kolbeinsdóttir 2-R, boðsmiðar á Listóleikritið fyrir tvo
Sigríður Birta Benediktsdóttir 2-T, tveir miðar á miðannaball NFVÍ
Óli Gunnar Gunnarsson 2-B, gjafakort á Hamborgarabúlluna fyrir tvo
Viktor Andri Kárason 5-U, 10 juice kort á Joe & The Juice

Smásagnakeppni KÍ
Kennarasamband Íslands og Heimili og skóli efna til smásagnasamkeppni meðal nemenda á öllum skólastigum í tilefni Alþjóðadags kennara 5. október.
Þema smásagnakeppninnar er „kennarinn minn“.
Keppendum er skipt í fimm flokka, þeir eru þessir:
• Leikskólinn
• Grunnskólinn – 1. til 4. bekkur
• Grunnskólinn – 5. til 7. bekkur
• Grunnskólinn – 8. til 10. bekkur
• Framhaldsskólinn
Handrit skal senda á netfangið smasaga@ki.is.

Jöfnunarstyrkur
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu?
Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is
Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum!
Umsóknarfrestur vegna skólaársins 2016-2017 er til 15. október næstkomandi!
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd

Útskrift
Föstudaginn 2. september 2016 voru 9 nemendur útskrifaðir með stúdents- og/eða verslunarpróf frá Verzlunarskóla Íslands. Skólinn óskar þeim innilega til hamingju með áfangann.

Evrópuþing unga fólksins
Katrín María og Sara Ísey taka í næstu viku þátt í Evrópuþingi unga fólksins í Genf í Sviss. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Verzlunarskólanum er boðið að senda nemendur á Evrópuþing unga fólksins en skólinn hefur verið í mjög góðu sambandi við tengilið í Bergen í Noregi um nokkurt skeið. Þingið greiðir kostnað ferðarinnar.
Nýnemavikan
Vikuna 29. ágúst-2. september er haldin hátíðleg nýnemavika hér í Verzlunarskóla Íslands. Nýir nemendur er boðnir velkomnir með allskyns leikjum og keppnum milli bekkja eins og reipitogi og karókí. Þema vikunar þetta árið eru jólin, nýnemar koma klæddir jólapeysum, með jólahúfur og í stígvélum. Vikan endar svo á nýnemaferð í Borgarnes þar sem hópnum er hrist saman með skemmtilegri kvöldvöku og grilli. Starfsfólks skólans er með í för og er ferðin áfengis- og vímuefnalaus.
Afgreiðslutími bókasafnsins
Afgreiðslutími bókasafnsins frá og með 29. ágúst er eftirfarandi:
Mánud. - fimmtud. kl. 8:00 - 19:00
Föstudaga kl. 8:00 - 16:00
Vikuna 22.-26. ágúst er bókasafnið opið frá 8:00-16:00
Verið velkomin

Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema
Kynningarfundur fyrir foreldra/forráðamenn nýnema verður haldinn í skólanum fimmtudaginn 25. ágúst nk. kl. 20:00. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði þar sem skólastjóri fer í stuttu máli yfir ýmis atriði sem lúta að námi við skólann. Stjórnendur skólans, námsráðgjafar, félagslífsfulltrúar og fulltrúar frá stjórn nemendafélagsins sem og foreldrafélaginu munu sitja fyrir svörum og að því loknu verður foreldrum og forráðamönnum boðið að hitta umsjónarkennara í kennslustofum. Hér er ekki um einstaklingsviðtöl að ræða heldur hitta umsjónarkennarar hvers bekkjar alla foreldra/forráðamenn samtímis.
Stjórnendur skólans, deildarstjórar, námsráðgjafar, félagslífsfulltrar og fulltrúar frá stjórn nemendafélagsins verða til taks á Marmaranum og svara spurningum eftir að hefðbundinni kynningu er lokið. Bókasafnið verður einnig opið.