26.03.2025 Auka opið hús Auka opið hús verður miðvikudaginn 9. apríl klukkan 14:00 fyrir þá sem ekki gátu heimsótt skólann 6. mars. Boðið verður upp á klukkutíma heimsókn í skólann þar sem nám skólans og félagslíf verður kynnt og boðið verður upp á Verzlólestina sem fer um skólann. Þá verður hægt að ná tali af starfsmönnum skólans og kynna sér sérstaklega einstaka námslínur. Við hlökkum til að taka á móti nemendum úr 10. bekk. Forráðamenn eru velkomnir með á kynninguna. Smelltu hér til að skrá þig á auka opið hús