01.02.2021 Breyttur afgreiðslutími á Bókasafni VÍ Vegna mikillar aðsóknar á bókasafnið hefur afgreiðslutíminn verið lengdur. Bókasafnið er opið á eftirfarandi tímum: Mánudaga- fimmtudaga 8:00-19:00Föstudaga 8:00-15:00 Helstu sóttvarnir á bókasafninu eru: Fjöldatakmörkun á safninu miðast við 30 einstaklinga þar með talið starfsmenn safnsins. Á lesstofunni okkar á þriðju hæðinni geta verið 30 nemendur. Handspritt eru við innganga safnsins sem og víða annars staðar á safninu. Grímuskylda er á safninu. Þegar bókum er skilað á bókasafnið eru bókakápurnar sótthreinsaðar og þær látnar “jafna sig” í fjóra daga áður en bækurnar eru lánaðar út aftur. Önnur gögn eins og vasareiknar og fartölvur eru sótthreinsaðar eftir skil. Verið innilega velkomin, hlökkum mikið til að sjá ykkur.