20.11.2017 Dagur íslenskrar tungu – 16. nóvember 2017 Í tilefni af Degi íslenskrar tungu unnu nemendur fjölbreytt verkefni tengd Jónasi Hallgrímssyni í íslenskutímum. Nemendur á 1. ári sömdu til að mynda ljóð úr nýyrðum Jónasar til heiðurs þjóðskáldinu. Á öðru ári glímdu nemendur við smásagnagerð eftir að hafa lesið kvæðið Ferðalok sem veitti þeim innblástur. Efri bekkingar fóru í stafsetningarkeppni og spreyttu sig á orðum eins og „dýjaveisa“, „ýfrugur“ og „glýpt“. Himingeimur Fjaðurmagnaður, fluggáfaður fuglafræðingurfann fýl í næturkyrrðinnimeð líffærin flaksandi,hann var drepinn. Undir tunglmyrkvanum og kvöldbjarmanumkvöldflóðið tók hryggdýriðeins og háðsk hagamúsí leit að lindýri. Axel, Birgir, Silvía og Sunneva 1-R Alheimurinn Heimurinn, heimili okkar allra. Himingeimurinn sem er endalausalmyrkvi, ríkir yfir jörðu.Aðdráttaraflið dregur í sig ljós,ljós lífsins.Brekkusóleyjar spretta upp í hinu fagra dalalífi. Hagamúsin er einmana,hún finnur ekki fyrir sólnándinni eins og hún man eftir henni.Vetrarkuldinn umvefur dalinnnú er músin kvalin. Fábrotinn er maðurinn, er hann svífur líkt og haförn um alltog verndar dalinn sinn,þrælsterkur berst hannvið allt sem ógnar honum. Næturkyrrðin hellist yfir þorpiðlíkt og stormsveipur. Rætur brekkusóleyjarinnar gefa samt ekki eftir. Arnbjörg, Elísa, Ester, Svava og Sólon 1-A.