Dómsmál tekið fyrir í lögfræðitíma

Í síðustu fór fram tvöföld aðalmeðferð í héraðsdómsmálinu „Kristinn Styrkársson Proppé gegn Líf Veru Brands- og Sölkudóttur o.fl.“ Kristinn (betur þekktur sem Stinni stuð) krafðist þess að tiltekin ummæli í Verzlunarskólablaðinu yrðu dæmd dauð og ómerk og sér dæmdar miskabætur. Nemendur sömdu stefnu, greinargerð, málflutningsræður og aðiljaskýrslur, en dóms er að vænta í næstu viku. Þeim fórst verkið vel úr hendi og sumar málflutningsræðurnar hefðu verið fullburðugar fyrir raunverulegum héraðsdómi.

Aðrar fréttir