Einstakt tækifæri til náms – NGK kynningarfundur

Verzlunarskóli Íslands og þrír aðrir menntaskólar á Norðurlöndum standa saman að 3ja ára námi til stúdentsprófs af náttúrufræðibraut þar sem sérstök áhersla er lögð á norðurskautstækni. Námið fer fram í Danmörku, Færeyjum, Íslandi og Grænlandi.

Fyrsti hópurinn hóf nám haustið 2019 og mun útskrifast í júní í Grænlandi. Nemendur á öðru ári eru staddir á Íslandi en þeir stunda nám við Verzló á þessari önn eftir að hafa verið í Færeyjum á haustönn. Nemendur á fyrsta ári í náminu stunda sitt nám í Danmörku allt fyrsta árið.

Kynningarfundur um námið verður haldinn í húsnæði Verzlunarskólans miðvikudaginn 9. febrúar klukkan 16:00. Á fundinum verður námið kynnt og nemendur úr bekknum segja frá sinni upplifun.

Nánari upplýsingar um námið má finna hér á vef skólans: Norður-Atlantshafsbekkurinn

Umsóknir þurfa að berast fyrir lok febrúar 2022. Íslenskir nemendur senda inn umsókn á  verslo@verslo.is  og  post@gribskovgymnasium.dk. Umsóknin þarf að vera á dönsku og þar segja nemendur frá sjálfum sér, hvað þeir hafa gert fyrir utan námið og láta fylgja með einkunnir og umsagnir ef einhverjar eru fyrir hendi. 

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið verslo@verslo.is

Kynningarmyndband nemenda NGK Einstakt tækifæri til náms

Aðrar fréttir