21.05.2020 Endurtektarpróf Dagana 27.-29. maí verða endurtektarpróf í dagskólanum og er próftaflan komin á heimasíðuna. Nemendur eru sjálfkrafa skráðir í próf í þeim áföngum sem þeir stóðust ekki. Þeir sem ekki ná endurtektarprófi, eða kjósa að þreyta þau ekki, þurfa að endurtaka áfangann í fjarnámi Verzlunarskólans. Mikilvægt er að þeir nemendur, sem ekki ná endurtektarprófi, skrái sig sjálfir í fjarnámið á heimasíðu skólans um leið og niðurstöður liggja fyrir. Skráning í fjarnám VÍ er frá 19. maí –1. júní og er öllum opið. Nemendur VÍ geta skráð sig til 5. júní. Aðrar dagsetningar fjarnámsins:2. júní: Nemendur fá send aðgangsorð að kennslukerfinu (Moodle), kennsla hefst.16. júní: Próftaflan kemur á netið5. – 12. ágúst: Sumarannarpróf.