Er þín fjölskylda NGK fjölskylda?

Norður-Atlantshafsbekkurinn (Nord-Atlantisk gymnasiumklasse), NGK, er nýjung fyrir ungmenni á Íslandi, Færeyjum, Grænlandi og í Danmörku, sem hafa áhuga á að mennta sig á Norður-Atlantshafssvæðinu. Nemendur mynda bekk sem á þremur árum fær bæði faglegt og menningarlegt framlag frá fjórum löndum. Að auki fá þeir aðgang að einstakri námsbraut sem inniheldur meðal annars líftækni, stærðfræði og norðurskautstækni.  Kynntu þér NGK frekar og skoðaðu bæklinginn.  

Bekkurinn stundar nám sitt á þremur árum í fjórum löndum. Fyrsti hópurinn í NGK hóf nám haustið 2019 í Danmörku. Bekkurinn er núna í Færeyjum og er von á þeim til Íslands í janúar þar sem hópurinn mun stunda nám í Verzló á vorönn 2021.

Við leitum að NGK fjölskyldum til að taka á móti nemendum bekkjarins í janúar. NGK nemandinn mun búa með fjölskyldunni í tæpa 6 mánuði eða meðan hann stundar nám sitt í Verzló. Með hverjum NGK nemanda fylgja 3.000 DK á mánuði sem hugsaðar eru sem greiðsla fyrir uppihald.

Áhugasamir eru hvattir til að fá nánari upplýsingar hjá Guðrúnu Ingu –  gunninga@verslo.is

Aðrar fréttir