Er þín fjölskylda NGK fjölskylda?
Þriðji Norður-Atlantshafsbekkurinn (Nord-Atlantisk gymnasiumklasse), NGK, er væntanlegur í Versló í byrjun árs 2023. Nemendur í NGK mynda bekk sem á þremur árum fær bæði faglegt og menningarlegt framlag frá fjórum löndum. Að auki fá þeir aðgang að einstakri námsbraut sem inniheldur meðal annars líftækni, stærðfræði og norðurskautstækni. Kynntu þér NGK frekar og skoðaðu bæklinginn.
Bekkurinn stundar nám sitt á þremur árum í fjórum löndum. Bekkurinn, 2-N, er núna í Færeyjum og er von á þeim til Íslands í janúar þar sem hópurinn mun stunda nám í Versló á vorönn 2023. Núna eru þrír bekkir í gangi, einn í Danmörku, einn í Grænlandi og svo bekkurinn sem er í Færeyjum á leið til Íslands í janúar.
Við leitum að NGK fjölskyldum til að taka á móti nemendum bekkjarins í byrjun janúar. NGK nemandinn mun búa með fjölskyldunni í tæpa 6 mánuði eða á meðan hann stundar nám sitt í Versló. Með hverjum NGK nemanda fylgja 80.000 Ikr. á mánuði sem hugsaðar eru sem greiðsla fyrir gistingu og uppihald (gisting, matur, internet o.s.frv.).
Margar fjölskyldur hafa myndað ný tengsl við granna okkar í vestri og austri – þetta verður að teljast einstakt tækifæri! Jafnframt er hér gott tækifæri til að rifja upp dönskuna, en námið er á dönsku – þó vitaskuld tali þau öll fína ensku!
Hægt er að fá nánari upplýsingar og skrá sig til leiks hjá Ármanni Halldórssyni, verkefnastjóra í alþjóðasamskiptum, armann@verslo.is.