Erasmus+ verkefnið S.W.I.M
Verzlunarskólinn er þátttakandi í Erasmus+ verkefninu, S.W.I.M sem er alþjóðlegt verkefni um styrk- og veikleika fjölmiðla. Það eru nemendur á nýsköpunar- og listabraut (3-B)sem taka þátt í verkefninu ásamt kennurum sínum, þeim Ármanni Halldórssyni, Berthu Sigurðardóttur og Hólmfríði Knútsdóttur. Löndin sem taka þátt í verkefninu eru Ísland, Ungverjaland, Þýskaland, Búlgaría og Króatía. Hópurinn sem tekur þátt í verkefninu ferðast til landanna ásamt kennurum sínum, funda þar og leysa ýmis verkefni sem öll snúa að fjölmiðlum. Nú þegar hefur hópurinn heimsótt Ungverjaland en þar var unnið með prentmiðla, í Búlgaríu var áherslan á útvarpsmiðla og í Króatíu var unnið með falsfréttir og sviðsettar atburðarrásir og myndir þannig að þær virki samt sannfærandi í pólitískum tilgangi. Á Íslandi mun hópurinn vinna með kvikmyndina Nightcrawler en myndin fjallar um þegar fjölmiðlafólk gengur of langt og fer að sviðsetja fréttir til að vekja athygli á sér.
Verkefnið fékk skemmtilega umfjöllun á MBL, sem hægt er að nálgast hér: Læra um falsfréttir og fjölmiðla