Fagpróf í verslun og þjónustu

Föstudaginn 26. maí var Kristján Helgi Gíslason útskrifaður frá Verzlunarskóla Íslands með Fagpróf í verslun og þjónustu.

 

Verzlunarskóli Íslands býður upp á fagnám fyrir starfandi verslunarfólk í samstarfi við Starfsmennasjóð verslunar- og skriftstofufólks. Námið er 90 einingar og er blanda af fjarnámi og vinnustaðanámi í fyrirtækjunum. Markmið námsins, er meðal annars að nemendur auki þekkingu sína og færni á vinnustað, þjálfist í að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og geti stýrt verkefnum í verslun í samræmi við skipulag og áætlanir.

Skólinn óskar Kristjáni Helga innilega til hamingju með áfangann.

Aðrar fréttir