Flottur árangur hjá nemendum í þýskukeppni

Félag þýskukennara stendur árlega fyrir keppninni Þýskuþraut í samstarfi við Goethe Institut. Í ár var keppnin haldin í 37. sinn og tóku 150 nemendur frá 9 framhaldskólum þátt á tveimur erfiðleikastigum. 15 nemendur Verzlunarskólans tóku þátt á stigi 1 að þessu sinni og stóðu sig allir með miklum sóma. Sigurður Helgason 2Y varð í 3. sæti og Sævar Þór Finnsson 2Y varð í 10. sæti. Verzlunarskólinn óskar þeim báðum hjartanlega til hamingju með frábæran árangur.

Aðrar fréttir