Forvarnardagurinn 2026 í Verzló

Forvarnardagurinn 2026 var settur í 21. sinn í Verzlunarskóla Íslands fimmtudaginn 1. október. Í tilefni dagsins fór fram málþing í skólanum þar sem áhersla var lögð á samtal, samkennd og vellíðan ungmenna.

Guðrún Inga Sívertsen skólastjóri bauð gesti velkomna og Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs Embættis landlæknis, stýrði málþinginu.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og María Heimisdóttir landlæknir tóku til máls. Einnig tóku til máls nemendurnir Magnús Geir Björgvinsson og Edda Sól Óladóttir.

Þema Forvarnardagsins í ár er samtal og samkennd. Framhaldsskólanemum býðst að taka þátt í verkefninu Samtal, þar sem ungt fólk leiðir samtöl ólíkra kynslóða út frá spurningunni: „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“

Aðrar fréttir