05.03.2019 Gestir í Verzló Þessa dagana eru í Verzló tveir þýskir kennarar sem starfa í menntaskóla í Berlín, þær Valerie og Heidi. Þær eru hér í starfskynningu og auk þess að sitja í kennslustundum hjá ýmsum kennurum eru þær að taka viðtöl við kennara og starfsfólk til að fá heildarmynd að skólanum og starfsemi hans.