Guðrún Inga nýr skólastjóri Verzlunarskóla Íslands

Tímamót í 116 ára sögu VÍ:

Guðrún Inga Sívertsen hefur verið ráðin nýr skólastjóri Verzlunarskóla Íslands og tekur hún við af Inga Ólafssyni. Guðrún Inga hefur verið starfsmanna- og þróunarstjóri Verzlunarskólans undanfarin ár, en hefur starfað við skólann nær óslitið frá árinu 2002. Sjálf útskrifaðist hún úr VÍ árið 1997. Guðrún Inga er fyrsta konan til að gegna starfi skólastjóra VÍ í rúmlega 110 ára sögu hans og jafnframt fyrsti Verzlingurinn.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að tilkynna um ráðningu Guðrúnar Ingu og með hana við stjórnvölinn getum við ekki annað en verið bjartsýn á framtíð skólans. Ég hlakka mikið til samstarfsins við hana, enda er Guðrún Inga gríðarlega öflugur leiðtogi, með skýra framtíðarsýn og því kjörin til að viðhalda og efla það öfluga starf sem unnið hefur verið innan skólans og gert hann að leiðandi framhaldsskóla hér á landi,“ segir Bryndís Hrafnkelsdóttir, formaður skólanefndarVerzlunarskóla Íslands.

Guðrún Inga er 45 ára gömul og útskrifaðist sem stúdent af hagfræðibraut Verzlunarskóla Íslands árið 1997. Hún lauk BA prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands, er með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu og diplómanám í kennslufræði frá sama skóla og er að ljúka AMP námi frá IESE háskólanum í Barcelona á Spáni. Guðrún Inga er gift Trausta Fannari Valssyni, forseta Lagadeildar Háskóla Íslands og eiga þau þrjá syni.

„Verzlunarskóla Íslands þekki ég vel, bæði sem starfsmaður og fyrrum nemandi, og ber sterkar taugar til hans. Ég hlakka mikið til að taka við starfinu af Inga sem hefur leitt skólann í gegnum miklar breytingar og verið frábær skólastjóri. Nú er það mitt hlutverk að taka við keflinu í síbreytilegu og krefjandi umhverfi og að halda Verzlunarskólanum áfram í fremstu röð og undirbúa nemendur hans sem best fyrir lífið framundan. Við skólann starfar framúrskarandi starfsfólk og það verður ánægjulegt að stilla saman strengi okkar allra við að setja skólanum skýra framtíðarsýn og takast saman á við áskoranir sem bíða skólans,“ segir Guðrún Inga Sívertsen, nýr skólastjóri Verzlunarskóla Íslands.

Verzlunarskóli Íslands, sem stofnaður var árið 1905, hefur útskrifað stúdenta frá árinu 1945. Hann er leiðandi í viðskiptamenntun á framhaldsskólastigi, aðlagar sig að síbreytilegum aðstæðum og leitast við að vera í fremstu röð í notkun upplýsinga- og tölvutækni. Verzlunarskólinn er bekkjarskóli þar sem um 1.050 nemendur stunda nám í dagskóla, um 1.400 nemendur stunda fjarnám og þar starfa 120 starfsmenn.

Aðrar fréttir