15. jan. 2021

Heimavistabikar afhentur

  • Hufflepuff vistin með kennurum: Ármann Halldórss. Hildur Kaldalóns, Björgvin Haukur Bjarnas.  Ísak Pétur Bjarkars. Víglundur Ottó Þorsteinss. Pétur Steinn Atlas. Kolbeinn Högni Gunnarss. Helga Ben.
    Hufflepuff vistin með kennurum: Ármann Halldórsson, Hildur Kaldalóns, Björgvin Haukur Bjarnason, Ísak Pétur Bjarkarson, Víglundur Ottó Þorsteinsson, Pétur Steinn Atlason, Kolbeinn Högni Gunnarsson, Helga Benediktsdóttir.
  • Búningaverðlaunin hlaut Indiana Breiðfjörð Árnadóttir (Slytherin).
    Búningaverðlaunin hlaut Indiana Breiðfjörð Árnadóttir (Slytherin).
  • Bikarinn eftirsótti.
    Bikarinn eftirsótti

Haustönn 2020 kenndu Ármann Halldórsson og Helga Benediktsdóttir valnámskeið um Harry Potter bækurnar í ensku. Hluti af þessu bráðskemmtilega námskeið var heimavistakeppnin, en nemendum var skipt upp í heimavistir með strangvísindalegum aðferðum. Í þetta skipti sýndi Hufflepuff mesta leikni í hinum ýmsum þrautum og reyndust hafa mestan siðferðisstyrk. Hlutu þau að launum hinn eftirsótta heimavistabikar í lok annar og önnur vegleg verðlaun; gjafabréf í Búlluna og Nexus. Að auki hlaut Indiana Breiðfjörð Árnadóttir verðlaun fyrir besta búning í búningakeppni áfangans, sem að þessu sinni fór fram á Teams.  

Fréttasafn