Heimboð í Verzló fyrir forráðamenn nemenda á 2. ári

Forráðamönnum nemenda á 2. ári er boðið í skólann mánudaginn 20. september klukkan 17:00. Við óskum eftir því að aðeins einn forráðamaður mæti frá hverjum nemenda. Kynning á skólanum fer fram í Bláa sal (2. hæð) þar sem farið verður yfir ýmis atriði sem lúta að námi við skólann. Jafnframt mun fulltrúi frá stjórn NFVÍ segja frá því sem ber hæst á árinu.  

Eftir dagskrá í Bláa sal verður forráðamönnum boðið að hitta umsjónarkennara í kennslustofum. Hér er ekki um einstaklingsviðtöl að ræða heldur hitta umsjónarkennarar hvers bekkjar alla foreldra/forráðamenn samtímis.

Stjórnendur skólans, námsráðgjafar, félagslífsfulltrúar og fulltrúar frá stjórn nemendafélagsins verða til taks á Marmaranum og svara spurningum.

Bókasafnið verður opið og er forráðamönnum velkomið að kynna sér glæsilega námsaðstöðu nemenda.

Aðrar fréttir