Heimsókn á handritasýninguna Heimur í orðum

Nemendur í 1. E og 1. T heimsóttu handritasýninguna Heimur í orðum í Eddu – húsi íslenskunnar í dag. Á sýningunni má sjá íslensku handritin sem geyma ómetanlegan menningararf okkar, meðal annars norræna goðafræði og eddukvæðin, sem eru einmitt meginefni íslenskuáfanga vorannarinnar á 1. ári. Hér er hægt að lesa meira um sýninguna: https://heimuriordum.is/is/

Aðrar fréttir