01.10.2026 Kveðja frá Verzlunarskóla Íslands Baldur Sveinsson tengdist skólanum alla sína starfsævi, fyrst sem nemandi og síðar sem kennari og stjórnandi. Baldur lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 1962 og hlaut síðar kennsluréttindi frá Háskóla Íslands. Hann hóf kennsluferil sinn árið 1964 og var lengst af stærðfræði- og tölvukennari auk þess að gegna starfi kennslu- og námsferlisstjóra. Starfsferill Baldurs spannaði 43 ár eða allt til ársins 2007 þegar hann lét af störfum sökum aldurs. Baldur var farsæll í starfi sínu og naut virðingar jafnt samstarfsfólks sem nemenda. Hann var framsýnn og sá snemma tækifæri sem fólust í ört vaxandi notkun tölva í námi og atvinnulífi. Á þeim tíma þegar tölvur voru enn nýjung í samfélaginu byggði hann ötullega undir þá sýn að nemendur Verzlunarskólans ættu að öðlast trausta þekkingu og reynslu í notkun tölvutækni og útskrifast þannig betur undirbúnir fyrir áframhaldandi nám og störf í atvinnulífinu. Undir hans forystu var tölvukennsla efld og þróuð af metnaði. Á upphafsárum tölvukennslu við skólann samdi hann námsbækur sem voru nauðsynlegar nemendum til að tileinka sér þá nýju tækni sem þá var að ryðja sér til rúms. Framlagi hans til þróunar kennslu og innleiðingar á tölvu- og upplýsingatækni við skólann verður seint fullþakkað og áhrifanna gætir enn í dag. Við hlið hans stóð alla tíð eiginkona hans, Kristín I. Jónsdóttir, sem einnig starfaði við skólann sem kennari í vélritun og upplýsingatækni. Þau voru samhent og samrýmd hjón sem sameinuðust um þann metnað að efla skólann og veita nemendum sem bestu menntun. Það var Verzlunarskólanum mikið happ að njóta starfskrafta þeirra beggja um áratugaskeið. Verzlunarskóli Íslands var rauður þráður í lífi Baldurs. Þar stundaði hann nám, þar mótaði hann kynslóðir nemenda og lagði á sama tíma mikið af mörkum til þróunar og framfara í skólastarfinu. Hann gerði miklar kröfur til sjálfs síns og var strangur í kennslu sinni, en um leið sanngjarn og réttsýnn. Nemendur vissu ætíð hvar þeir höfðu hann og að kröfurnar sem hann gerði voru settar fram af einlægum vilja til að hjálpa þeim að ná árangri og vaxa sem einstaklingar. Þeir sem störfuðu með honum minnast hans sem trausts samstarfsmanns, mikils fagmanns og manns sem lét sér ávallt annt um hag skólans og nemenda hans. Við minnumst Baldurs Sveinssonar með miklum hlýhug og þakklæti fyrir framlag hans til Verzlunarskóla Íslands. Við sendum Kristínu, börnum þeirra, fjölskyldu og vinum innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd starfsmanna Verzlunarskóla Íslands Guðrún Inga Sívertsen og Þorkell H. Diego