Lok innritunar vorið 2020

Nú er innritun í Verzlunarskólann lokið. Alls bárust 703 umsóknir, 522 sem val 1 og 181 sem val 2. Í ár voru 361 nemandi innritaður á fyrsta ár. Það er alltaf sárt að þurfa að hafna góðum nemendum en vonandi eru allir, sem ekki komust í Verzló, sáttir við sinn varaskóla, enda eru allir framhaldsskólar landsins góður valkostur.

Eins og áður þá fengu nemendur einkunnir gefnar í bókstöfum: A, B+, B, C+, C og D við lok grunnskóla. Þegar umsóknir nemenda voru metnar þá var reiknaður út stigafjöldi fyrir hvern og einn umsækjanda þar sem notast var við tölur frá Menntamálastofnun, sbr. það sem sjá má hér að neðan:

A B+ B C+ C D
4 3,75 3 2,75 2 1

Þetta er eingöngu gert til að flýta fyrir úrvinnslu umsókna. Þær greinar sem horft var á við innritun voru: stærðfræði, íslenska, danska (eða eitthvert annað Norðurlandamál), enska, samfélagsfræði og náttúrufræði. Stigafjöldi var síðan reiknaður út með eftirfarandi hætti: stærðfræði og íslenska með tvöfalt vægi og síðan voru valdar tvær hæstu einkunnir af hinum fjórum. Allir nemendur með hærra en B í öllum greinum voru skoðaðir. Hámarksstigafjöldi var 24, þ.e. nemandi með A í öllum greinum og lágmarkstigafjöldi 18, þ.e. nemandi sem var með B í öllum greinum. Í mörgum tilvikum var erfitt að velja á milli nemenda og var þá eftirfarandi haft í huga:

· kynjahlutfall
· þátttaka í félagsstarfi
· einkunnir í öðrum greinum
· annað sem gat skipt máli varðandi umsóknina.

Af þeim sem voru teknir inn voru 58 nemendur með 24 stig (A í öllu). Allir nemendur með 22,5 stig (B+) eða hærra fengu inngöngu. 12 nemendur með undir 22,5 stig innritast einnig og réð þar línuval mestu um ásamt ofangreindum þáttum. Væntanlegir nýnemar koma frá 64 mismunandi grunnskólum af öllu landinu. Tekið var inn á brautir og línur og niðurstaðan var eftirfarandi:

  • alþjóðabraut – 1 bekkur
  • nýsköpunar- og listabraut – 1 bekkur
  • náttúrufræðibraut
    eðlisfræðilína – 2 bekkir
    líffræðilína – 4 bekkir
  • viðskiptabraut
    hagfræðilína – 2 bekkir
    stafræn viðskiptalína – 1 bekkur
    viðskiptalína – 3 bekkir

Starfsfólk Verzlunarskólans óskar öllum ánægjulegs sumars.

Aðrar fréttir