01.10.2013 Nemendaskiptaferðir Um mánaðarmótin ágúst-september tók skólinn á móti 25 spænskum nemendum og kennurum þeirra. Hópurinn kemur frá bænum Mollerussa skammt frá Barcelona. Nemendaskiptin heppnuðust mjög vel í alla staði og nú eru Verzlunarskólanemendur ásamt kennurum farnir til Spánar til að endurgjalda heimsóknina. Á föstudag leggur hópur nemenda ásamt kennurum land undir fót til Chartres í Frakklandi en síðastliðið vor komu frönsku nemendurnir til Íslands. Fjölskyldur Verzlónema sem hýsa erlenda gesti eiga þakkir skildar fyrir að leggja hönd á plóg við að hjálpa skólanum að taka þátt í nemendaskiptaverkefnum.