Nemendur á ferð um Frakkland

Átta nemendur á 2. ári ásamt tveimur starfsmönnum fóru dagana 14.–21. september til borgarinnar Créon í Frakklandi á vegum Erasmus+. Þema verkefnisins var „Almenn vellíðan, sjálfbærni og frönsk menning“.

Nemendurnir dvöldu hjá frönskum fjölskyldum og fengu með því einstaka innsýn í franska menningu, siði og daglegt líf. Skólinn sem nemendur heimsóttu heitir Lycée Robert Bandinter og fengu nemendur að sitja í kennslustundum og vinna ýmis verkefni.  

Þá viku sem nemendur voru í Frakklandi fóru þeir í margskonar skoðunarferðir. Það var til að mynda farið í hjólaferð að rústum gamals klausturs, La Sauve-Maneur, frá árinu 1079 og er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar var tækifærið nýtt til að rækta andann og nemendur leiddir í gegnum öndunaræfingu á þessum fallega stað.  

Nemendur heimsóttu Arcachonflóann þar sem nátturuskoðun, fræðsla og upplifun rann saman í eitt. Farið var í fuglagarðinn Teich Ornithological Park, síðan að hinni stórfenglegu sandöldu Dune du Pilat sem er hæsta sandalda Evrópu og gnæfir um 100 metra yfir Atlantshafið við Arcachon-flóann.  

 Nemendur fengu að kynnast hinni glæsilegu borg, Bordeaux, þar sem saga og arkitektúr lifnar við. Farið var í siglingu um ána Garonne og síðan fékk hópurinn leiðsögn um miðbæ Bordeaux en svæðið hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan árið 2007. Miðbærinn þykir einstakt dæmi um framúrskarandi þéttbýlishönnun og borgarskipulag frá upplýsingaöldinni. 

Rúsínan í pylsuendanum var svo að fá að upplifa franska menningu í París en þar gistu nemendur eina nótt fyrir heimferð. 

Ferðin var frábær í alla staði og nemendur sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.  

Frönsku nemendurnir munu svo endurgjalda heimsóknina með komu hingað til lands í mars/apríl 2027. 

Erasmus+
Verkefnið var liður af Erasmus+ áætlun og styrkt af henni.

Aðrar fréttir