Nemendur á líffræðibraut heimsóttu Tékkland

Vikuna 13.–18. september fóru tíu nemendur á 3. ári á líffræðibraut til bæjarins Teplice í Tékklandi. Þar heimsóttu þeir framhaldsskólann Gymnázium Teplice og kynntust skólastarfi, menningu og umhverfi tékknesku nemendanna.

Ferðin var farin með styrk frá Erasmus+ og gaf nemendum tækifæri til að kynnast daglegu lífi jafnaldra sinna í Tékklandi og upplifa umhverfi sem er að mörgu leyti ólíkt því íslenska.

Nemendur vörðu tveimur dögum í Gymnázium Teplice þar sem þeir fengu meðal annars kynningu á dýragarði sem skólinn rekur og er í umsjón nemenda og sjálfboðaliða. Íslensku nemendurnir héldu einnig kynningar fyrir tékknesku nemendurna um sögu og menningu Íslands og buðu þeim að smakka íslenskt góðgæti.

Farið var í nokkrar ferðir þar sem nemendur fræddust um jarðhita á svæðinu og hvernig hann er nýttur í heilsulindum, heimsóttu grasagarð og gamlan kastala og kynntust sögu og umhverfi Teplice.

Ferðin var mjög áhugaverð fyrir nemendur þar sem saga og  arkitektúr bæjarins er margt ólíkt því sem við þekkjum frá Íslandi.

Erasmus+
Verkefnið var liður af Erasmus+ áætlun og styrkt af henni.

Aðrar fréttir