Nemendur frá Svíþjóð í heimsókn í Verzló

Þann 23. september kom hópur nemenda frá Sandbackaskolan í Arvidsjaur í Svíþjóð í heimsókn í Verzlunarskólann.

Nemendurnir tóku þátt í vinnustofum þar sem meðal annars var fjallað um norrænt samstarf og Evrópumál og tungumál landanna borin saman. Að lokum hittu þau nemendur á öðru ári á alþjóðabraut og áttu með þeim gott spjall.

Erasmus+
Heimsóknin var hluti af Erasmus+ samstarfi sem Verzlunarskólinn tekur þátt í og gaf nemendum skólanna tækifæri til að kynnast og skiptast á hugmyndum og reynslu.

Aðrar fréttir