24.09.2026 Nemendur frá Vín í heimsókn í Verzló Dagana 13.–18. september tók hópur nemenda á öðru ári á móti 13 drengjum frá Vín í Austurríki. Heimsóknin var hluti af Erasmus+ samstarfsverkefni þar sem áhersla var lögð á gervigreind, tungumál og menningu. Dagskrá vikunnar var fjölbreytt og unnu íslensku og austurrísku nemendurnir saman að ýmsum verkefnum. Þeir kynntust meðal annars möguleikum gervigreindar, báru saman tungumálin og fengu innsýn í menningu hvors annars. Í vinnustofum og umræðum veltu nemendur fyrir sér kostum og göllum gervigreindar, hvernig best sé að nýta tæknina og hvaða reglur og sjónarmið þurfi að hafa í huga við notkun hennar. Nemendur fengu einnig tækifæri til að kynnast íslensku tæknifyrirtæki í heimsókn til CCP. Samstarfið gaf nemendum gott tækifæri til að kynnast, efla tungumálakunnáttu sína og vinna saman þvert á lönd og menningarheima. Auk verkefnavinnunnar var lögð áhersla á að gestirnir fengju að kynnast Íslandi. Farið var í dagsferð um Reykjanes og Gullna hringinn þar sem nemendur upplifðu íslenska náttúru og kynntust sögu landsins. Á lokadegi heimsóknarinnar kynntu nemendur afrakstur vinnu vikunnar. Að kynningum loknum var haldið í FlyOver Iceland og heimsókninni síðan slitið með sameiginlegum hádegisverði. Heimsóknin tókst einstaklega vel og var ánægjulegt að sjá hversu góð tengsl mynduðust milli nemendanna á þessum fáu dögum. Samstarfinu er þó hvergi nærri lokið því á vorönn halda íslensku nemendurnir til Vínar þar sem þeir hitta austurrísku félaga sína á ný. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ áætluninni og er frábært dæmi um þau tækifæri sem alþjóðlegt samstarf getur skapað fyrir nemendur, bæði námslega og félagslega.