Nemendur í 2-A í Erasmus+ ferð til Rennes

Dagana 12.–18. september héldu nemendur í 2-A ásamt tveimur kennurum til Rennes í Frakklandi. Þar fengu þeir tækifæri til að kynnast frönsku skóla- og fjölskyldulífi og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá.

Nemendurnir gistu hjá frönskum fjölskyldum og fengu þannig góða innsýn í daglegt líf gestgjafa sinna. Þeir heimsóttu einnig skóla frönsku nemendanna, Lycée Chateaubriand.

Dagskráin var í senn fróðleg og skemmtileg. Íslensku og frönsku nemendurnir unnu meðal annars saman að verkefni um hvað felst í því að vera virkur samfélagsþegn. Þar komu fram fjölbreyttar hugmyndir og sköpuðust líflegar umræður meðal nemenda.

Farið var í dagsferð til Mont-Saint-Michel, þar sem aldagamalt klaustur var skoðað og gengið um fjöruna í kringum það. Einnig var farin dagsferð til Nantes þar sem ansi áhugavert safn var skoðað, Les Machines de L´ile.

Nemendur fengu jafnframt leiðsögn um miðbæ Rennes og kynntust þar sögu og umhverfi borgarinnar. Rennes er fremur lítil borg með sjarmerandi miðbæ sem kom hópnum skemmtilega á óvart.

Ferðin gekk í alla staði vel og nemendurnir voru sér og skólanum til sóma.

Erasmus+
Verkefnið var liður af Erasmus+ áætlun og styrkt af henni.

Aðrar fréttir