7. des. 2022

Nemendur í ritlist kynntu lokaverkefni sín

  • Hópurinn
  • Guðrún Rannveig Stefánsdóttir og Rut Thorlacius Guðnadóttir kennarar áfangans

Nemendur í ritlist héldu hátíðlega upp á lok áfangans með skemmtilegum og lifandi upplestri lokaverkefna sinna á bókasafni skólans. Listaverkin voru eins fjölbreytt og verðandi listamennirnir eru margir og fengu áheyrendur að hlýða á lestur ljóða og smásagna, horfa á myndbandsverk og dilla sér í takt við frumsamin lög. Boðið var upp á kakó og kökur og var stundin með öllu notaleg og hlý. 

Til hamingju með áfangann kæru nemendur, við hlökkum til að stilla upp útgefnum ritverkum ykkar í bókahillur safnsins með tíð og tíma! 

Fréttasafn