Nýnemaball

Nemendafélagið stendur fyrir nýnemaballi miðvikudaginn 7. september. Ballið verður í Kaplakrika og stendur frá klukkan 21:00 til 01:00. DJ Patti, Húgó og Birnir eru meðal listamanna sem munu halda uppi stuðinu á ballinu.

Undanfarin ár hafa dansleikir okkar farið mjög vel fram og nemendur verið til fyrirmyndar. Til þess að forðast allan troðning fyrir utan staðinn eiga nemendur að mæta skv. eftirfarandi tímatöflu:

1. ár mætir kl. 21:00 og blæs í áfengismæli
2. ár mætir kl. 21:30
3. ár mætir kl. 21:50 

Edrúpotturinn verður á sínum stað og eru allir nemendur hvattir til að blása í áfengismæla. Veglegir vinningar eru í edrúpottinum á þessari fyrstu stóru skemmtun nemendafélagsins. Það er skólinn og foreldrafélagið sem gefa vinninga í pottinn.

Gleðin stendur yfir til klukkan 01:00 í Kaplakrika. Við hvetjum forráðamenn til að sækja sína krakka að loknu balli.

Frí er í skólanum í fyrsta tíma á fimmtudaginn. Kennsla hefst því samkvæmt stundaskrá klukkan 9:35.

Aðrar fréttir