10.02.2013 Opið hús í Verzlunarskóla Íslands Á vorönn hvers skólaárs verður 10. bekkingum og forráðamönnum þeirra boðið að koma og kynna sér skólann og þá aðstöðu sem stendur til boða. Opna húsið í ár verður miðvikudaginn 13. febrúar frá kl. 17:00 – 19:00. Kennarar, nemendur, námsráðgjafar og annað starfsfólk skólans verður til viðtals ásamt yfirstjórn skólans. Nánari upplýsingar fást hjá námsráðgjöfum.