Rafrænn kynningarfundur NGK

Boðið verður upp á rafrænan kynningarfund  NGK fyrir þá sem ekki gátu mætt á kynningarfundinn síðastliðinn mánudag. Rafræni kynningarfundurinn verður á morgun, fimmtudaginn 25. febrúar klukkan 17:00. Skráning á þann fund fer fram hér.

Fjórir framhaldsskólar, Gribskov Gymnasium í Danmörku, GUX Sisimiut á Grænlandi, Miðnám á Kambsdali í Færeyjum og Verzlunarskóli Íslands, standa saman að framsæknu samstarfsverkefni um 3ja ára nám til stúdentsprófs af náttúrufræðibraut. Um er að ræða einstaka námsbraut með sérstaka áherslu á norðurskautstækni. Verkefnið felur í sér að mynda blandaðan framhaldsskólabekk með nemendum frá öllum fjórum löndunum. Í þennan bekk innritast nemendur sem ljúka 10. bekk nú í vor. Nemendur útskrifast með fullkomlega gilt danskt stúdentspróf og fer kennslan fram á dönsku.

Aðrar fréttir